Menningarráð
87. fundur
23. september 2021
kl.
08:30
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Ella Vala Ármannsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
aðalmaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir
varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Gjaldskrá fræðslu - og menningarsviðs fyrir 2022
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og framkvæmdastjóri Menningarhússins, fór yfir drög að gjaldskrá safna fyrir fjárhagsárið 2022.
Menningarráð gerir ekki athugasemdir við drög að gjaldskrá safna fyrir fjárhagsárið 2022.
2.
Starfs - og fjárhagsáætlun 2022 og 3ja ára áætlun 2023 - 2025
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins, fór yfir drög að starfs - og fjárhagsáætlun safna í Dalvíkurbyggð fyrir fjárhagsárið 2022.
Menningarráð gerir ekki athugasemdir við drög að Starfsáætlun safna í Dalvíkurbyggð fyrir fjárhagsárið 2022.
3.
Fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 05
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 05.
Lagt fram til kynningar
5.
Lagfæring á listaverki
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna, fór yfir stöðu mála vegna lagfæringar á listaverki.
Lagt fram til kynningar. Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og menningarhúsins Berg heldur áfram að vinna í málinu.
6.
Þróunarvinna fyrir Menningarhúsið Berg
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs, upplýsti um stöðu mála varðandi þróunarvinnu.
Lagt fram til kynningar.
7.
Ósk um styrk vegna göngustígs meðfram Dalvíkurkirkju
Tekið fyrir bréf frá sóknarnefnd Dalvíkur, dags. 17.09.2021, þar sem óskað er eftir styrk vegna stígs við austurhlið Dalvíkurkirkjugarðs.
Menningarráði líst vel á verkefnið og sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs er falið að skoða málið betur.
8.
Frá sóknarnefnd Dalvíkurkirkju vegna fjárhagsáætlunar 2022
Tekið fyrir bréf frá formanni sóknarnefndar Dalvíkursóknar, dags. 26.08.2021. Undirritaður f.h. sóknanefndar óskar eftir fjárstyrk fjárhagsárið 2022, með niðurfellingu fasteignagjalda, eins og undanfarin ár.Meðfylgjandi er einnig minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 26.08.2021.
Menningarráð samþykkir samhljóða með þremur greiddum atkvæðum að veita styrk fjárhagsárið 2022.