Menningarráð
77. fundur
27. janúar 2020
kl.
10:00
-
11:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson
varaformaður
Heiða Hilmarsdóttir
aðalmaður
Ella Vala Ármannsdóttir
formaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra 2020-2024
Á aðalfundi Eyþings þann 15. nóvember sl. var samþykkt ný sóknaráætlun fyrir Norðurland eystra 2020-2024. Sóknaráætlun er stefnuskjal sem felur í sér stöðumat landshlutans, framtíðarsýn og markmið í tilgreindum málaflokkum ásamt skilgreindum leiðum að markmiðunum. Áhersluflokkarnir í sóknaráætluninni eru atvinnumál og nýsköpun, menning og umhverfismál. Áætlunin tekur mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og einstök markmið og aðgerðir tengd við tilheyrandi heimsmarkmið.
Lagt fram til kynningar.
2.
Áhersluverkefni Eyþings 2020
Tekinn fyrir rafpóstur frá Eyþingi dagsettur 20. desember 2019, þar sem auglýst er eftir hugmyndum að áhersluverkefnum 2020. Áhersluverkefni eru samningsbundin verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Verkefni geta til dæmis verið ráðgjafar- og átaksverkefni á sviði nýsköpunar-, menningar- og umhverfismála.Áhersluverkefnin skulu samþykkt af stjórn Eyþings og þurfa að hljóta staðfestingu stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál. Hægt er að skila inn hugmyndum til Eyþings til 31. janúar 2020.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 05
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 05 fyrir fjárhagsárið 2019
Lagt fram til kynningar
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fóru yfir helstu áherslur í fjárhagsáætlun safna fyrir fjárhagsárið 2020.
Lagt fram til kynningar
5.
Skipulag viðburða á bókasafni fram á vor
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna, fór yfir skipulag viðburða á Bókasafni Dalvíkurbyggðar fram á vor.
Lagt fram til kynningar
6.
Þróunarvinna fyrir Menningarhúsið Berg
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri og Ella Vala Ármannsdóttir, nefndarmaður, upplýstu Menningarráð um stöðu mála í þróunarvinnu fyrir Menningarhúsið Berg.
Lagt fram til kynningar
7.
Styrkveiting úr menningar-og viðurkenningarsjóði
Farið yfir vinnureglur menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála. Í þeim kemur fram að ráðið auglýsir í upphafi árs eftir umsóknum um styrki úr Menningar-og viðurkenningarsjóði menningarráðs Dalvíkurbyggðar fyrir það ár.Farið yfir drög að auglýsingu um umsóknir í sjóðinn.
Menningarráð felur Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóa fræðslu- og menningarsviðs að koma auglýsingu til fjölmiðla.