Fara í efni

Menningarráð

76. fundur
14. nóvember 2019 kl. 08:30 - 09:45
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson varaformaður
Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
Ella Vala Ármannsdóttir formaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Gjaldskrár 2020
Málsnúmer 201911018
Björk Eldjárn Kristjánsdóttir forstöðumaður safna í Dalvíkurbyggð fór yfir gjaldskrá á málaflokki 05.
Menningarráð samþykkir gjaldskrá fyrir fjárhagsárið 2020 (málaflokk 05) og vísar henni til afgreiðslu í sveitastjórn Dalvíkurbyggðar.
2.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur bókhalds vs. áætlun 2019
Málsnúmer 201902133
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs lagði fram til kynningar fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 05
Lagt fram til kynningar
3.
Umbótaskýrsla Héraðsskjalasafns Svarfdæla
Málsnúmer 201911045
Björk Eldjárn Kristjánsdóttir forstöðumaður safna fór yfir helstu atriði í umbótaskýrslu Héraðskjalasafns Svarfdæla.
Menningarráð þakkar Björk Eldjárn Kristjánsdóttur fyrir kynningu á umbótaskýrslu fyrir Héraðsskjalasafn Svarfdæla sem var skilað til Þjóðskjalasafns Íslands 31. okt. 2019.
4.
Listaverkasafn Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201309048
Varðveisla listaverka í eigu Dalvíkurbyggðar
Menningarráð telur nauðsynlegt að finna lausn á varðveislu listaverkasafns Dalvíkurbyggðar til framtíðar. Sviðsstjóra og forstöðumanni safna er falið að vinna að viðeigandi lausn.