Menningarráð
70. fundur
6. desember 2018
kl.
08:00
-
09:35
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson
varaformaður
Heiða Hilmarsdóttir
aðalmaður
Ella Vala Ármannsdóttir
formaður
Starfsmenn
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Hlynur Sigursveinsson
Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Frá sóknarnefnd Dalvíkurkirkju - fjárhagsáætlun 2019
Styrkveiting menningarráðs til sóknarnefndar Dalvíkurkirkju 2019
Lagt fram til kynningar.
2.
Samningur um afnot, umráð og útleigu á Ungó
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti greinargerðir frá Leikfélagi Dalvíkur og Gísla,Eirík,Helga um afnot á Ungó 2018 til 2019.
Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóra falið að framlengja leigusamninga við Leikfélag Dalvíkur og Gísla,Eirík,Helga ehf. til eins árs.
3.
Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 886Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að kanna möguleika á styrkjum til þess að vinna og safna saman heimildum um sögu sjávarútvegs í Dalvíkurbyggð, bæði skriflegar og munnlegar heimildir.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ósk um breytingu á styrk
Erindi frá Írisi Hauksdóttur um breytingu á styrk frá menningar- og viðurkenningarsjóði vegna söngnámskeiðs fyrir börn sumarið 2018.
Í 5.gr. vinnureglna Menningarráðs vegna úthlutunar styrkja af framlagi til menningarmála segir "Verkefni/atburðir skulu eiga sér stað á almannaksárinu sem stykrveiting fer fram." í ljósi þessa er beiðni um að færa námskeið í söng fyrir börn fram á árið 2019 hafnað og umsækjanda bent á að hann getur sótt um að nýju þegar opnað verður fyrir styrkumsóknir í febrúar 2019. Styrkveiting til jólatónleikahalds er óbreytt svo fremi sem jólatónleikar verða haldnir.
5.
Fjárhagsleg stöðuskýrsla jan. til og með nóv. 2018
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti fjármálastöðu málaflokks 05 eins og hún var 31. nóvember 2018.
Lagt fram til kynningar
6.
Hlutverk menningarráðs með tilliti til menningarverðmæta
Staðan á gamla skólanum.
Menningarráð fór yfir hugmyndir um nýtingu gamla skólans og útkomuna úr íbúakönnun um framtíðarnýtingu á húsnæðinu og telur nauðsynlegt að dagsetning á íbúafundi verði ákveðin sem fyrst og auglýst.