Menningarráð
68. fundur
3. júlí 2018
kl.
15:00
-
17:15
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson
varaformaður
Heiða Hilmarsdóttir
aðalmaður
Ella Vala Ármannsdóttir
formaður
Starfsmenn
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Hlynur Sigursveinsson
Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Gagnagátt 2018-2022, menningarráð
Farið var yfir hvaða gögn má finna undir gagnagáttinni, s.s. starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2018, Menningarstefnu, erindisbréf o.fl.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fundartími Menningarráð
Menningarráð samþykkir að haldnir verði 6-8 fundir á ári. Fundartími ráðsins verði fyrsta fimmtudag mánaðar kl. 8:15.
3.
Tilnefning ritara
Formaður Menningarráðs leggur til að sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs riti fundargerðir ráðsins.
Ráðið samþykkir tillögu formanns.
4.
Erindi frá forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns Dalvíkurbyggðar
Forstöðumaður bóka- og héraðsskjalasafns lagði fyrir menningarráð eftirfarandi spurningar:1) Er möguleiki á að hafa Brimars sýninguna opna út júlí.2) Möguleikann á að bjóða upp á leiðsagnir yfir Fiskidagshelgina. 3) Vill Dalvíkurbyggð kaupa eintök af bókinni "Demantar Dalvíkurbyggðar" til gjafa. 4) Hvert er hlutverk og stefna Listaverkasafns Dalvíkurbyggðar.
Menningarráð tók fyrir erindi frá forstöðumanni Bóka- og héraðsskjalasafns Dalvíkurbyggðar.
1) Sér liður á dagskrá fundarins.
2) Menningarráði líst vel á hugmyndina en ekki liggur fyrir formleg umsókn með kostnaðaráætlun og því er sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram.
3) Menningarráði finnst hugmyndin góð og vísar þessum lið til Byggðaráðs.
4) Farið var yfir söfnunarstefnu listaverkasafns Dalvíkurbyggðar. Málið verður tekið upp á næsta fundi ráðsins.
1) Sér liður á dagskrá fundarins.
2) Menningarráði líst vel á hugmyndina en ekki liggur fyrir formleg umsókn með kostnaðaráætlun og því er sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram.
3) Menningarráði finnst hugmyndin góð og vísar þessum lið til Byggðaráðs.
4) Farið var yfir söfnunarstefnu listaverkasafns Dalvíkurbyggðar. Málið verður tekið upp á næsta fundi ráðsins.
5.
Beiðni um styrk vegna sýningarinnar "Demantar Dalvíkur"
Tekin fyrir beiðni frá Ragnari Þoroddssyni um styrkveitingu að fjárhæð kr. 200.000 til að geta haft sýninguna á verkum Brimars opna í júlí.
Menningrráð samþykkir samhljóða beiðnina.Tekið út af málaflokki 05810
6.
Uppsögn - Byggðasafn
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs upplýsti ráðið um uppsögn Írisar Ólafar Sigurjónsdóttur forstöðumanns á Byggðasafninu Hvoli og tók uppsögnin gildi frá og með 1.júní 2018.
Lagt fram til kynningar.
7.
Menningarfélagið Berg ses. - Ársreikningur 2017
Lagt fram til kynningar.