Menningarráð
65. fundur
7. desember 2017
kl.
08:15
-
10:15
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
Varaformaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Starfsmenn
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Hlynur Sigursveinsson
Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Gagnagátt - Menningarráð
Yfirferð á menningarstefnu Dalvíkurbyggðar og vinnureglum vegna úthlutunar styrkja til menningarmála.
Málinu frestað til næsta fundar.
2.
Leikfélag Dalvíkur, samningur
Samningur milli Dalvíkurbyggðar og Leikfélags Dalvíkur og styrkveiting vegna leiksýningar árið 2017.
Menningarráð samþykkir fyrirliggjandi samning milli Dalvíkurbyggðar og Leikfélags Dalvíkur og styrkveitingu vegna jólasýningar 2017. Styrkurinn tekinn af lykli 05810.
3.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Stöðuyfirlit á málaflokk 05 frá 1. janúar til 4. desember 2017.
Lagt fram til kynningar.
4.
Heimildasafn vegna gerðar myndarinnar Brotið
Tekið var fyrir erindi frá Hauki Sigvaldasyni þar sem meðal annars kom fram:"Nú stöndum við frammi fyrir því að gera eitthvað við allt það efni sem við höfum tekið upp og komist yfir eftir öðrum leiðum. Þess má geta að nokkrir viðmælendur eru horfnir á braut en léðu okkur þó sögu sína. Ég hef frá fyrstu stundu hugsað mér að þetta efni ætti heima á Dalvík í aðgengilegu formi fyrir þann eða þá sem hafa gagn og gaman af grúski"
Menningarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs ásamt forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafn að ganga frá kaupum á heimildasafni sem Haukur Sigvaldason aflaði við gerð myndarinnar Brotið og var ekki nýtt við gerð myndarinnar. Ráðið telur að efnið muni nýtast við skráningu sjávarútvegssögu Dalvíkurbyggðar. Tekið út af málflokki 05810.
5.
Gjaldskrár 2018 á málaflokk 05
Gjaldskrár á málaflokk 05 fyrir árið 2018.
Fyrirliggjandi gjaldskrár fyrir 2018 samþykktar með þremur greiddum atkvæðum.
6.
90 ára afmælissýning á málverkasafni JSBrimars
Fyrirspurn til Menningarhússins Bergs ses. um uppsetningu á málverkasafni JS Brimars í eigu sveitarfélagsins í tilefni 90 ára afmælis listmálarans þann 13. júní 2018.
Menningarhúsið Berg er fullbókað frá maí til og með september 2018 og því ekki hægt að koma við sýningu á verkum JS Brimars í kringum afmælisdag hans þann 13. júní 2018.
Menningarráð leggur til að skoðað verði með að haldin verði rúllandi sýning í stigahúsi Ráðhússins á verkum JS Brimars í eigu Dalvíkurbyggðar. Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsvið er falið að hafa samband við alla sem málið varðar.
Menningarráð leggur til að skoðað verði með að haldin verði rúllandi sýning í stigahúsi Ráðhússins á verkum JS Brimars í eigu Dalvíkurbyggðar. Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsvið er falið að hafa samband við alla sem málið varðar.