Menningarráð
59. fundur
15. nóvember 2016
kl.
13:00
-
14:40
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
formaður
Starfsmenn
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Hlynur Sigursveinsson
Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.
Tekið til umræðu og hver eru næstu skref.Engin fylgigögn eru með þessu máli.
Sviðsstjóra er falið að hafa sambandi við Jóhann Antonsson varðandi rammasamning er snýr að tímaramma og kostnaði við gagnaöflun á Sjávarútvegssögu Dalvíkurbyggðar.
2.
Umsókn um styrk
Tekin fyrir umsókn frá höfundunum Hermanni Stefánssyni, Sigurlínu Bjarneyju Gísladóttur, Atla Sigurþórssyni, Valgarði Egilssyni og Heimi Frey Hlöðverssyni um styrk til að halda upplestrar og spjallfund um Látra-Björgu.
Menningarráð tekur vel í að haldið verði málþing um Látra-Björgu í tilefni að því að liðin eru 300 ár frá fæðingu hennar og í tengslum við fyrirhugaða afhjúpun af minnismerki hennar í Dalvíkurbyggð sem Menningarsjóður styrkti.
Menningarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 50 þúsund vegna málþings um Látra-Björgu.
Menningarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 50 þúsund vegna málþings um Látra-Björgu.
3.
Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði
Fyrir liggur umsókn frá stjórn UMSE um styrkveitingu vegna skráningar á sögulegum gögnum vegna 100 ára afmælis UMSE.
Afgreiðslu frestað.
4.
Tillaga að breytingu á fyrirkomulagi Menningarráðs
Til umræðu er tillaga að menningarráð verði fært frá fræðslu og menningarsviði undir atvinnumála og kynningarráð.Engin fylgigögn eru með þessu máli.
Menningarráð óskar eftir betur útfærðum tillögum til að geta tekið afstöðu til málsins.