Menningarráð
56. fundur
18. febrúar 2016
kl.
08:30
-
10:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson
Formaður
Heiða Hilmarsdóttir
Varaformaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Starfsmenn
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Hlynur Sigursveinsson
Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Styrkir úr Menningarsjóði 2016
Samþykkt að setja auglýsingu um styrkveitingar Mennigarráðs í lok febrúar og var sviðsstjóra falið að ganga frá því.
2.
Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.
Á síðasta ári var auglýst eftir aðila til að afla gagna vegna verkefnisins og kom fram ein fyrirspurn undir lok árs 2015.
Sviðsstjóra var falið að hafa samband við umræddan aðila og málið tekið fyrir aftur á næsta fundi ráðsins.
Sviðsstjóra var falið að hafa samband við umræddan aðila og málið tekið fyrir aftur á næsta fundi ráðsins.
3.
Ósk um kaup á Sigtúni, Grundargötu 1
Eins og fram hefur komið var Sigtún auglýst til sölu og kom eitt tilboð í eignina sem gengið var að. Lagt fram til kynningar.
Sviðsstjóra er falið að ræða við aðila um samstarfs- og afnotasamning milli Leikfélags Dalvíkur og Bakkabræðraseturs.
Sviðsstjóra er falið að ræða við aðila um samstarfs- og afnotasamning milli Leikfélags Dalvíkur og Bakkabræðraseturs.
4.
Yfirferð og endurskoðun á erindisbréfum fagráða
Tillaga að breytingu á 9.gr. í gildandi erindisbréfi. Ráðið samykkir erindisbréfið eins og það var lagt fyrir á fundinum.