Menningarráð
55. fundur
17. desember 2015
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson
Formaður
Heiða Hilmarsdóttir
Varaformaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Uppsögn á starfi sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs
Menningarráð færir Hildi Ösp bestu þakkir fyrir störf hennar að menningarmálum í Dalvíkurbyggð, þakkar henni samstarfið og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi.
2.
Listamaður Dalvíkurbyggðar
Á síðasta fundi fól Menningarráð íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að gera drög að reglum um tilnefningu bæjarlistamanns Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
3.
Framtíðarnýting á Ungó og Sigtúni
Á síðasta fundi óskaði Menningarráð eftir því við forstöðumann Byggðasafnsins að skoða með hvaða hætti væri best að varðveita sýningarvélar sem staðsettar eru í Ungó.Forstöðumaður skoðaði aðstöðu og telur að um mikil menningarverðmæti sé að ræða. Leitaði hún eftir áliti frá Kvikmyndasafni Íslands. Þar kemur fram að í sögulegu tilliti sé best að hafa vélarnar á sínum upprunalega stað. Sýningarklefinn á Dalvík er sennilega einn elsti óbreytti sýningarklefi landsins.Ljósmynda þyrfti klefann betur til að varðveita heimildir um hann ef svo færi að hann yrði tekinn niður. Kvikmyndasafn Íslands hefur mikinn áhuga á að fá að fylgjast með framvindu þessa merkilega menningarmálefnis á Dalvík.
Menningarráð tekur undir með því sem fram kemur í bréfi frá Kvikmyndasfni Íslands og vill skoða leiðir til að sýningarvélarnar getir verið áfram á upprunalegum stað.
4.
Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.
Menningarráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum til að taka að sér vinnu við að afla munnlegra heimilda vegna undirbúnings við ritun sjávarútvegssögu Dalvíkurbyggðar.
Í áætlun ársins 2015 er óráðstafað um 600.000 úr styrktarsjóði og vegna verkefna sem ekki verða á árinu og leggur til að þessir fjármunir verði notaðir vegna ofangreindrar heimildaröflunar.
Í áætlun ársins 2015 er óráðstafað um 600.000 úr styrktarsjóði og vegna verkefna sem ekki verða á árinu og leggur til að þessir fjármunir verði notaðir vegna ofangreindrar heimildaröflunar.
6.
Yfirferð og endurskoðun á erindisbréfum fagráða
Farið var yfir núgildandi erindisbréf Menningarráðs.
Afgreiðslu frestað
7.
jólasveinabúningar
Bent hefur verið á að halda þurfi áfram að endurnýja jólasveinabúninga. Menningarráð samþykkir að keyptir verði 4 jólasveinabúningar. Kaupin rúmast innan fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.