Menningarráð
54. fundur
28. október 2015
kl.
08:15
-
09:50
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson
Formaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Haukur Snorrason
Varamaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Tónlistarhátíðin Bergmál
Lagður fram tölvupóstur frá Hafdísi Vigfúsdóttur og Kristjáni Karli Bragasyni fyrir hönd tónlistarhátíðarinnar Bergmál. Þar kom fram að hátíðin verði ekki haldin í ár og óskað eftir því að fá að halda tveggja ára samning, en bíða í ár með að samningurinn taki gildi og styrki þannig fyrst Bergmál 2016 sem haldið verður dagana 1.-4. ágúst 2016 og að óbreyttu á sama tíma árið eftir eða dagana 7.-10. ágúst 2017.
Menningaráð samþykkir að Bergmál fái umsaminn styrk árið 2016, verði hátíði haldin en vísar að öðru leyti til umsóknar í styrktarsjóð Menningarráðs fyrir árið 2017 vegna hátíðarinnar það ár.
2.
Styrkbeiðni vegna jólaballs
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi lagði fram drög að samningum við Kvennfélagið Hvöt, Kvennfélagið Tilraun og Lionsklúbbinn Sunnu vegna jólatrésskemmtana í Dalvíkurbyggð næstu fjögur árin.
Menningarráð samþykkir drögin.
3.
Frá Dalvíkurkirkju; Fjárhagsáætlun 2016; Beiðni um styrk vegna fasteignagjalda
Kolbrún Pálsdóttir fyrir hönd sóknarnefndar Upsasóknar óskar eftir sambærilegum styrk vegna fasteignagjalda fyrir árið 2016 og undanfarin ár.
Menningarráð samþykkir styrkinn en minnir á að félög og einstaklingar sæki um fyrir auglýstan umsóknarfrest ár hvert.
4.
Listamaður Dalvíkurbyggðar
Menningarráð ræddi þann möguleika að veita viðurkenningu til listamanns eða hóps árlega sem myndi þá kallast bæjarlistamaður Dalvíkurbyggðar.
Menningarráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að gera drög að reglum um tilnefningu bæjarlistamanns Dalvíkurbyggðar og leggja fyrir næsta fund ráðsins.
5.
Framtíðarnýting á Ungó og Sigtúni
Rædd skýrsla vinnuhóps um framtíðarnýtingu á Ungó og Sigtúni.
Menningarráð frestar frekari ákvörðurnartöku þar til skýrsla um úttekt á eignum Dalvíkurbyggðar verður tilbúin.
Menningarráð óskar eftir því við forstöðumann Byggðasafnsins að skoða með hvaða hætti væri best að varðveita sýningarvélar sem staðsettar eru í Ungó.
Menningarráð óskar eftir því við forstöðumann Byggðasafnsins að skoða með hvaða hætti væri best að varðveita sýningarvélar sem staðsettar eru í Ungó.
6.
Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum á 775. fundi sínum að leggja til við menningaráð að koma þessu verkefni af stað árið 2016 með fyrstu áherslu á öflun munnlegra heimilda sem og gera heildstæða áætlun um verkefnið.Byggðaráð samþykkti einnig að leggja til við menningaráð að ofangreindu verkefni verði fundið svigrúm innan fjárhagsramma málaflokks 05 á árinu 2016.
Menningarráð telur ekki vera svigrúm innan fjárhagsramma ársins 2016 til að bæta þessu verkefni við þau verkefni sem nú þegar hafa verið ákveðin, nema að mjög litlu leyti. Ráðið telur einnig mikilvægt að skipuð verði ritnefnd og strax verði gengið frá því hver eigi að rita verkið þannig að heimildaöflun geti hafist. Ráðið telur verkefnið áhugavert en ítrekar að það þurfi að fylgja því aukið fjármagn.