Fara í efni

Menningarráð

42. fundur
11. febrúar 2014 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Þóra Rósa Geirsdóttir Varaformaður
Hlín Torfadóttir Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Samningur milli Dalvíkurbyggðar og Bakkabræðraseturs um Sigtún
Málsnúmer 201312093
Með fundarboði fylgdi greinargerð frá Heiðu Símonardóttur, forsvarsmanni Bakkabræðraseturs en menningarráð hafði óskað eftir nánari upplýsingum um sýningu Bakkabræðra. Í greinargerðinni kemur fram að fyrri hluti sýningarinnar mun opna í byrjun júní og undirbúningur að seinni hluta mun hefjast strax næsta vetur.

Menningarráð þakkar fyrir upplýsingarnar og hlakkar til opnunar sýningarinnar.
2.
Menningarstefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201211032
Menningarstefna Dalvíkurbyggðar var tekin til endurskoðunar. Stefnt er að því að ljúka endurskoðun á næsta fundi ráðsins.