Menningarráð
38. fundur
30. maí 2013
kl.
13:00
-
16:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson
Formaður
Þóra Rósa Geirsdóttir
Hlín Torfadóttir
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Bakkabræðrasetur
Með fundarboði fylgdu drög að samningi Dalvíkurbyggðar við Bakkabræðrasetur um leigu á hluta húsnæðis Sigtúns sem og samstarfssamningur sem Leikfélag Dalvíkur og Bakkabræðrasetur hafa gert sín á milli. Formaður Menningarráðs og sviðsstjóri fóru yfir vinnuferlið og stöðu mála. Jafnframt var upplýst að um á næstu dögum verður gerður nýr húsaleigusamningur við Leikfélagið um þann hlutu Sigtúns sem það hefur til umráða sem og um frístandandi bílskúr á baklóðinni. <EM>Menningarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til sveitarstjórnar til afgreiðslu.</EM>
2.
Stefnumótun í menningarmálum fyrir sveitarfélög á starfssvæði Eyþings.
Með fundarboði fylgdi drög að stefnumótun í menningarmálum á starfssvæði Eyþings unnin er að menningaráði Eyþings. Stefnan er hluti af svæðisbundinni sóknaráætlun 20/20. <EM>Menningarráð gerir ekki athugasemdir en óskar eftir að byggðaráð taki stefnuna til umfjöllunar sér í lagi sjöunda lið stefnunnar.</EM>
3.
Framtíðarnýting á Ungó og Sigtúni
Teknar voru til umræðu kvikmyndavélar sem eru á 2. hæð í Ungó. Eina leiðin til að ná þeim heilum út úr húsinu er að taka þær upp í gegnum þakið en viðgerð á þakinu er í bígerð.Hins vegar liggur ekki fyrir endanleg greining hvort mögulegt sé en að nýta þær. <EM>Menningarráð óskar eftir að við endurbætur sem nú standa fyrir dyrum verði gert ráð fyrir almennum kvikmyndasýningum, þ.e. sýningartjaldi og rafmagni fyrir sýningarvél.</EM><EM></EM><EM>Menningarráð frestar því að taka ákvörðun um mögulega breytingu á staðsetningu vélanna.</EM>