Fara í efni

Menningarráð

37. fundur
2. maí 2013 kl. 13:00 - 15:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Þóra Rósa Geirsdóttir Varaformaður
Hlín Torfadóttir
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Framtíðarnýting á Ungó og Sigtúni
Málsnúmer 201212038
Fundurinn hófst á skoðun á húsakynnum í Sigtúni og Ungó. Með í þeirri ferð voru jafnframt Ingvar Kristinsson umsjónarmaður fasteigna Dalvíkurbyggðar og Kristján Guðmundsson formaður Leikfélags Dalvíkur.
2.
Logo f. Byggðasafnið Hvol
Málsnúmer 201304083
Undir þessum lið sat Íris Ólöf Sigurjónsdóttir safnstjóri fundinn.Íris kynnti tillögu að merki (lógó) fyrir Byggðasafnið Hvol sem Hlín Ólafsdóttir graffískur hönnuður hefur hannað fyrir safnið. <EM>Menningarráð lýsir ánægju sinni með merkið.</EM>
3.
Ársskýrsla 2012
Málsnúmer 201304004
Undir þessum lið sat Laufey Eiríksdóttir forstöðumaður bóka- og héraðsskjalasafns fundinn. Laufey fór yfir helstu þætti í ársskýslu bókasafnins. <EM>Menningarráð þakkar henni fyrir upplýsingarnar og skýrsluna.</EM>
4.
Ársskýrsla
Málsnúmer 201304003
Undir þessum lið sat Laufey Eiríksdóttir forstöðumaður bóka- og héraðsskjalasafns fundinn.Laufey fór yfir helstu þætti ársskýslu Héraðsskjalasafns Svarfæla. <EM>Menningarráð þakkar henni fyrir upplýsingarnar og skýrsluna.</EM>
5.
Menningarstefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201211032
Frestað til næsta fundar.
6.
Bakkabræðrasetur
Málsnúmer 201304089
Sviðsstjóri fór yfir fund sem hann og sveitarstjóri áttu með formanni og gjaldkera Leikfélags Dalvíkur um mögulega samnýtingu á húsnæði Ungó og Sigtúns með Bakkabræðrasetri. Niðurstaða fundarins var að félagið telur að samstarfið geti vel gengið og að hendi þess verði lagt kapp á að ná fram niðurstöðu sem henti báðum aðilum.Jafnframt upplýsti sviðsstjóri og formaður um fund sem þau áttu ásamt sveitarstjóra og  forsvarsmanni Bakkabræðraseturs þar sem rætt var um hvaða forsendur þurfi að vera fyrir hendi til þess að gengið verði til samninga. Meðal forsenda er að stofnað verði sér félag um reksturinn og verði íbúum sveitarfélagsins gert mögulegt að vera aðilar að fyrirtækinu/félaginu.