Menningarráð
Rætt var um hvaða starfssemi færi vel með starfsemi Leikfélagsins í Ungó. Nú er á fjárhagsáætlun 2013 og þriggja ára áætlun að gera húsnæðið upp að utan og eru aðilar sammála um mikla möguleika Ungó og Sigtúns og að mikilvægt sé að nýta húsnæðið allan ársins hring.
Klukkan 08:40 kom Kristín Aðalheiður Símonardóttir og sat fundinn undir þessum lið. Rætt var um möguleika þess að Sögusetur Bakkabræðra yrði í Ungó sem og upplýsingamiðstöð og jafnframt yrði anddyri leikhússins stækkað eins og stefnt hefur verið að frá kaupum á Sigtúni. Bæði forsvarsmönnum leikfélagsins og Kristínu Aðalheiði f.h. Sögusetursins finnst samvinnan afar spennandi og sjá hana ganga upp.
Menningarráð óskar eftir því við stjórn Leikfélagsins að það kynni hugmyndir fyrir stjórn og leiti frekari hugmynda.
Jafnframt leggur Menningarráð til við bæjarstjórn að leigendum í Sigtúni verði sagt upp leigu á húsnæðinu en þegar hefur leikfélagið hluta hússins í notkun.
Frekari umræðu um framtíðarnýtingu Ungó/Sigtúns verður haldið áfram á málþingi Menningarráðs um menningarstefnu Dalvíkurbyggðar sem áætlað er að halda í febrúar og ákvörðun um framtíðarnýtingu hússins liggi fyrir í vor."
Á málþingi um menningarmál voru málefni Ungó og Sigtúns til umræðu en í auglýsingu um málþingið var jafnframt auglýst eftir aðilum sem kynnu að hafa áhuga á að koma að rekstri eða starfsemi í húsinu. Enginn lýsti formlegum áhuga á því, annar en Sögusetur Bakkabræðra, en margar góðar hugmyndir komu fram að frekari nýtingu s.s. með bíósal, kaffihúsi o.fl.
Menningarráð felur formanni ráðsins, sviðsstjóra og sveitarstjóra að kalla forsvarsmenn Söguseturs Bakkabræðra á fund til að skoða hvort markmið allra aðila séu sameiginleg og hefja vinnu við gerð samnings ef svo er.