Menningarráð
35. fundur
12. febrúar 2013
kl.
08:15
-
10:15
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson
Formaður
Hlín Torfadóttir
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Ný safnalög
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggðasafnsins Hvols kom á fundinn og fór yfir helstu nýmæli í safnalögum nr. 141/2011.Umræður urðu um framtíð Byggðasafnsins og fleira því tengt. <EM>Menningarráð þakkar Írisi Ólöfu fyrir yfirferðina.</EM>
2.
Ný bókasafnslög
Laufey Eiríksdóttir forstöðumaður bóka- og hérðasskjalasafns fór yfir helstu nýmæli í nýjum bókasafnslögum nr. 150/2012. <EM>Menningarráð þakkar Laufeyju fyrir yfirferðina</EM>
3.
Ljósmyndasafn
Undir þessum lið sat Lafuey Eiríksdóttir forstöðumaður Bóka- og héraðsskjalasafns fundinn. Til umræðu var hvort rétt sé að stofna ljósmyndasafn sem sérstaka einingu en það sé ekki hluti af héraðsskjalasafni. <EM>Menningarráð vísar þessari hugmynd til frekari umræðu við fjárhagsáætlanagerð.</EM>
4.
Menningarstefna Dalvíkurbyggðar
Farið var yfir dagskrár íbúafundar um menningarstefnuna sem haldinn verður miðvikudaginn 27. febrúar klukkan 16:15. Menningarráð vonast eftir góðri mætingu á þennan mikilvæga fund.
5.
Þjónustusamningur við Náttúrusetur?
Tekið var fyrir erindi frá Hjörleifi Hjartarsyni, f.h. Náttúrusetursins þar sem óskað er eftir þjónustusamningi við Dalvíkurbyggð. Þar kemur m.a. fram að Náttúrusetrið yrði formlegur umsjónaraðili Friðlands Svarfdæla, að það héldi úti fræðslu og frekari uppbyggingu í friðlandinu. <EM>Menningarráð telur efnisóskir bréfsins ekki á forræði ráðsins. Menningarráð telur þó mikilvægt að framtíðarhlutverk og rekstur Nátturusetursins komist í skýran farveg og mun hvetja til umræðu um það á íbúaþingi um menningarmál 27. feb. nk.</EM><EM></EM> <EM>Menningarráð vísar erindinu því til byggðaráðs Dalvikurbyggðar.</EM>