Fara í efni

Menningarráð

31. fundur
30. maí 2012 kl. 14:00 - 15:45
á skrifstofu sviðsstjóra
Nefndarmenn
Freyr Antonsson Formaður
Hlín Torfadóttir Aðalmaður
Ásdís Gunnlaugsdóttir Varamaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Styrkumsóknir í Menningar- og viðurkenningasjóð 2012
Málsnúmer 201202001
a) Ábendingar varðandi úthlutun. Undir þessum lið kom Íris Ólöf á fundinn til þess að ræða úthlutanir sjóðsins. <EM>Íris vék af fundi.</EM> b) Tekin var fyrir styrkumsókn frá Ármanni Einarssyni fyrir hönd Tónlistarskólans vegna kostnaðar við útgáfu geisladisks með öllum leik- og grunnskólabörnum Dalvíkurbyggðar. <EM>Menningarráð styrkir verkefnið um 100.000 kr. með vísan á lið 05-81-9110 og þakkar Ármanni jafnframt fyrir þá miklu vinnu sem hann hefur lagt í þetta metnaðarfulla verkefni.</EM>
2.
Ársskýrsla 2011
Málsnúmer 201205023
Með fundarboði fylgdi ársskýsla Bókasafns Dalvíkurbyggðar. <EM>Lagt fram.</EM>
3.
Siðareglur Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201203046
Teknar voru til umsagnar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa Dalvíkurbyggðar. <EM>Menningarráð fagnar reglunum og gerir ekki athugasemdir við þær.</EM>
4.
Menningarstefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201205072
Tekin var til umfjöllunar menningarstefna Dalvíkurbyggðar og hvernig væri hægt að auka áhrif íbúa sveitarfélagsins á hana og innleiðingu.Ákveðið var að stefna að opnum fundi/málþingi í haust um menningarstefnuna og hvaða leiðir eru færar til innleiðingar og til virkrari þátttöku íbúa. Formanni og sviðsstjóra falið að hefja undirbúning sem farið verður yfir á næsta fundi ráðsins.
5.
Önnur menningarmál 2012
Málsnúmer 201202115
a) Sigurlaug Stefánsdóttir safnsstjóri Bóka- og héraðsskjalasafns hefur látið af störfum. Sigurlaugu eru þökkuð störf  í þágu sveitarfélagsins og óskað velfarnaðar.