Fara í efni

Menningarráð

112. fundur
11. desember 2025 kl. 08:15 - 09:45
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lovísa María Sigurgeirsdóttir formaður
Jóhann Már Kristinsson varaformaður
Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Málsnúmer 202302116
Óskað er umsagnar um tillögu á vinnslustigi að nýju aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar sem er í kynningu til 11.nóvember nk. Gögn málsins má nálgast hér:https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264
Lagt fram til kynningar.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 202505063
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir helstu atriði í fjárhagsáætlun safna og menningar fyrir fjárhagsárið 2026.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fjárhagslegt stöðumat 2025 fyrir málaflokk 05 , Menningarmál.
Málsnúmer 202503033
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir fjárhagslegt stöðumat safna fyrir fjárhagsárið 2025.
Lagt fram til kynningar.
4.
Bekkur Jóhanns Svarfdælings - færsla á Ráðhúslóð
Málsnúmer 202407048
Tekið fyrir erindi frá Skipulagsráð 28.10. 2025.
Menningarráð samþykkir tillögu þess efnis með þremur atkvæðum að fundin verði ný staðsetning fyrir bekk og skilti þegar nýtt Byggðasafn verður risið.
5.
Vinnuhópur um húsnæði byggðasafnsins
Málsnúmer 202503032
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs,fer yfir fundagerðir vinnuhóps um byggingu á nýju Byggðasafni.
Lagt fram til kynningar
6.
Starfsmannamál á söfnum og Menningarhúsi Berg
Málsnúmer 202005069
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir starfsmannamál á söfnum og Menningarhúsinu Berg.
Lagt fram til kynningar.
7.
Auglýsing fyrir Menningar - og viðurkenningarsjóð Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202311131
Teknar fyrir reglur og gerð auglýsing fyrir Menningar - og viðurkenningarsjóð Dalvíkurbyggðar.
Sviðsstjóra falið að setja auglýsingu um Viðurkenningarsjóð í birtingu í byrjun janúar 2026.