Fara í efni

Menningarráð

109. fundur
5. júní 2025 kl. 08:15 - 10:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lovísa María Sigurgeirsdóttir formaður
Jóhann Már Kristinsson varaformaður
Heiða Hilmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Frávikagreiningar fyrir fjárhagsárið 2024. Málaflokkur 04. Fræðslumál
Málsnúmer 202505048
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhúsins Berg, fór yfir frávik á málaflokki 05 - Menningarmál fyrir fjárhagsárið 2024.
Lagt fram til kynningar
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 202505063
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir helstu atriði í vinnu við fjárhagsáætlun 2026.
Lagt fram til kynningar
3.
Vinnuhópur um húsnæði byggðasafnsins
Málsnúmer 202503032
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhúsins Berg, fór yfir helstu atriði er varða vinnu vinnuhóps um nýtt byggðasafn.
Menningarráð þakkar Björk fyrir góða kynningu á stöðu málsins.
4.
Fjárhagslegt stöðumat 2025 fyrir málaflokk 05 , Menningarmál.
Málsnúmer 202503033
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhúsins Berg, fór yfir fjárhagslegt stöðumat hjá söfnum og Menningarhúsi Bergs.
Lagt fram til kynningar
5.
Starfsmannamál á söfnum og Menningarhúsi Berg
Málsnúmer 202005069
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhúsins Berg, fór yfir stöðu á starfsmannamálum hjá söfnum og Menningarhúsi.
Lagt fram til kynningar
6.
17 júní samningur
Málsnúmer 202505167
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs og Jón stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, fóru yfir drög að samningi við Leikfélag Dalvíkur um að skipuleggja 17. júní í Dalvíkurbyggð.
Menningarráð gerir ekki athugasemd við samningsdrög og samþykkir hann með þremur atkvæðum með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.
7.
Aðalfundur MHR 2025
Málsnúmer 202505118
Tekið fyrir bréf dags. 21.05.2025 frá Miðstöð héraðsskjalasafna MHR.
Lagt fram til kynningar