Menningarráð
103. fundur
21. maí 2024
kl.
08:15
-
09:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lovísa María Sigurgeirsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
aðalmaður
Jóhann Már Kristinsson
varaformaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Endurskoðun á húsaleigusamningi vegna kaffihússins í Bergi
Endurskoðuð drög að húsaleigusamningi fyrir kaffihúsið Berg tekin til umfjöllunar.
Málinu frestað til næsta fundar.
2.
Upplýsingar fyrir 80 ára lýðveldisafmælið
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, fór yfir hvað ríkið ætlar að gera í tilefni að 80 ára lýðveldisafmælinu..
Lagt fram til kynningar
3.
Samstarfsnet menningarfulltrúa sveitarfélaga SSNE
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, upplýsti um samráðsvettvang menningarfulltrúa sveitarfélaga SSNE.
Lagt fram til kynningar
4.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál og bókað í trúnaðarmálabók
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Geymsla á munum úr Byggðasafni Hvoll
Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs, fer yfir stöðuna á verkefninu.
Lagt fram til kynningar
6.
Beiðni um styrk vegna tónleika á Dalvík
Tekin fyrir styrkbeiðni frá Tónsmiðjunni á Húsavík dags. 03.04.2024.
Styrkbeiðni hafnað með þremur atkvæðum. Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum að þau þurfi ekki að borga húsaleigu fyrir salinn í Bergi fyrir viðburð.
7.
Hátíðarhöld 17. júní 2024
Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, upplýsir um hvernig staðið verður að hátíðarhöldum á 17. júní.
Lagt fram til kynningar.