Menningarráð
102. fundur
3. maí 2024
kl.
08:15
-
09:45
í viðtalsherbergi á 1. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lovísa María Sigurgeirsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
aðalmaður
Jóhann Már Kristinsson
varaformaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Lagfæring á listaverki
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, upplýsti ráðið um stöðuna á verkefninu.
Lagt fram til kynningar
2.
Fjárhagslegt stöðumat 2024 fyrir málaflokk 05. Menningarmál
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og Menningarsviðs og Björk Hóm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins Berg, fer yfir fjárhagslegt stöðumat á málaflokki 05. Menningarmál.
Lagt fram til kynningar
3.
Endurskoðun á húsaleigusamningi vegna kaffihússins í Bergi
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og Menningarsviðs og Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins Berg, fara yfir stöðuna á verkefninu.
Máli frestað til næsta fundar
4.
Vorráðstefna forstöðumanna bókasafna
Björk Hóm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins Berg, sagði frá Vorráðstefnu forstöðumanna bókasafna.
Lagt fram til kynningar
5.
Starfsmannamál á söfnum og Menningarhúsi Berg
Björk Hóm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins Berg, fór yfir starfsmannamál á söfnum og Menningarhússins Berg
Lagt fram til kynningar
6.
Umsókn um styrk varðveislu og lýsingu á útlistaverki JSBrimars á Marúlfshúsinu
Tekið fyrir bréf frá Heiðnýu Helgu Stefánsdóttur dags.02.04.2024.
Máli frestað og sviðsstjóra falið að óska eftir frekari upplýsingum.
7.
Umsókn um styrk vegna afmælistónleika hjá Sölku kvennakórs
Tekið fyrir bréf frá Sölku kvennakór sem óskar eftir styrk vegna afmælistónleika í Bergi.
Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum að veita Sölku kvennakór 300.000 kr. styrk.
8.
Heimsókn í Menningarhúsið Berg
Menningarráð fer í heimsókn í Menningarhúsið Berg.
Við þökkum forstöðumanni fyrir góðar móttökur.