Fara í efni

Landbúnaðarráð

94. fundur
12. febrúar 2015 kl. 08:15 - 10:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson Formaður
Freyr Antonsson Varaformaður
Guðný Sverrisdóttir Aðalmaður
Gunnsteinn Þorgilsson Aðalmaður
Þorleifur Albert Reimarsson Varamaður
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Fjallgirðingar 2015
Málsnúmer 201502062
Til umræðu fyrirhugaðar breytingar á þáttöku sveitarfélagsins við viðhald fjallgirðinga á Árskógsströnd. Á fundinn mættir fulltrúi Vegagerðarinnar Pálmi Þorsteinsson.
Fulltrúi Vegagerðarinnar Pálmi Þorsteinsson útskýrði styrkjakerfi Vegagerðarinnar hvað varðar girðingar.
Ráðið þakkar Pálma fyrir greinargóðar upplýsingar.
Landbúnaðarráð felur sviðsstjóra að taka saman allar þær upplýsingar sem fyrir liggja og hugmyndir að nýju fyrirkomulagi varðandi fjallgirðingar og þær sendar bændum og landeigendum á Árskógsströnd til kynningar.





2.
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa; endurskoðun í upphafi kjörtímabils.
Málsnúmer 201408022
Til kynningar endurskoðaðar siðareglur kjörinna fulltrúa.
Ráðið hefur kynnt sér siðareglurnar og gerir ekki athugasemdir.