Landbúnaðarráð
81. fundur
12. júní 2013
kl.
13:00
-
15:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson
Formaður
Ottó B Jakobsson
Varaformaður
Elín Rósa Ragnarsdóttir
Aðalmaður
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
Sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Fjallgirðingar,afréttir og ástand gróðurs/skepnhalds 2013
Til umræði ástand fjallgirðinga í Dalvíkurbyggð og fyrihugaðar viðgerðir og framkvæmdir. Einnig ástand gróðurs og skepnuhalds í sveitarfélaginu.Á fundinn mættu
Fjallskilastjórar hverra deildar fyrir sig mættu á fundinn og gerðu grein fyrir ástandi gróðurs og girðinga í sveitarfélaginu.Fyrir liggur að ástand fjallgirðinga er mjög slæmt.Allt bendir til þess að ekki sé hægt að sleppa á afréttir sveitarfélagsins fyrr en undir mánaðarmót júní/júlí, sem yrði þá mánuði seinna en í venjulegu árferði. Ráðið bendir á að einnig gæti komið til einhverra takmarkana á sleppingu hrossa á afréttir.Landbúnaðarráð ákveður að senda ráðherra atvinnu-og nýsköpunar áskorun um að brugðist verði skjótt við vegna óvenjulegs áferðis. Miklar umræður urðu um þetta málefni og ákveðið að fylgja málinu vel eftir.
2.
Umsókn um beitarland
Anton Hallgrímsson kt. 040166-5219 óskar eftir beitilandi til afnota fyrir fimm hross.
Landbúnaðarráð samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að útbúa samning um leigu landsins.
3.
Umsókn um beitarland
Sveinbjörn J Hjörleifsson kt. 291056-3269 óskar eftir beitilandi fyrir hross.
Landbúnaðarráð samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að útbúa samning um leigu landsins.
4.
Ósk um breytingu á gangnadögum í Dalvíkurdeild haustið 2013.
Þorleifur Kristinn Karlsson kt. 220563-4729 bóndi á Hóli óskar eftir breytingu á gangnadögum haustið 2013.
Landbúnaðarráð samþykkir umsóknina.
5.
Ný búfjársamþykkt Dalvíkurbyggðar 2013
Ný búfjársamþykkt Dalvíkurbyggðar sem fengið hefur staðfestingu Atvinnuvega- og nýsköpunaráðuneytisins lögð fram til kynningar
Landbúnaðarráð fagna gildistöku nýrrar búfjársamþykktar og felur byggingarfulltrúa að birta hana á heimasíðu sveitarfélagsins.
6.
Reglur og gjaldskrár vegna katta og hundahalds í Dalvíkurbyggð
Nýjar reglur og gjaldskrá vegna katta og hundahalds í Dalvíkurbyggð og framfylgt þeirra.
Landbúnaðarráð leggur til að fundið verði hentugt húsnæði og ákveðin starfsmaður verði fengin til að sinna kvörtunum vegna katta og hundahalds.
7.
Ósk um þáttöku sveitarfélagsins við lagfæringu á girðingarstæði
Zophonías Ingi Jónmundsson kt. 101051-2699 óskar með rafbréfi dagsettu 10 júní 2013 eftir þátttöku sveitarfélagsins í lagfæringu á girðingarstæði milli Hrafnsstaða og Ytra-Holts á 140 metra kafla.
Landbúnaðarráð telur sér ekki fært að verða við þessari beiðni þar sem ástand girðinga almennt í sveitarfélaginu er með allra versta móti.