Landbúnaðarráð
80. fundur
24. apríl 2013
kl.
13:00
15:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson
Formaður
Elín Rósa Ragnarsdóttir
Aðalmaður
Freyr Antonsson
Varamaður
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Refa- og minkaeyðing 2013
Á fund ráðsins voru mættir þeir aðilar sem séð hafa um eyðingu á ref og mink í Dalvíkurbyggð.Fram kom að Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur skipaði þann 25. janúar 2013 Starfshóp um fyrirkomulag refa- og minkaveiðaStarfshópurinn hefur það hlutverk að fara yfir núverandi fyrirkomulag og framkvæmd refa- og minkaveiða þ.m.t. verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga með það að markmiði að auka skilvirkni verkefnisins og leggja fram tillögur um breytingar eftir því sem starfshópurinn telur tilefni til. Starfshópurinn skal skila tillögum sínum eigi síðar en 1. október 2013.Einnig var kynnt samræmd gjaldskrá um minkaveiði fyir yfirstandandi veiðiár sem ráðuneytið hefur ákveðið.
Landbúnaðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldið sem greitt er fyrir hvern feldan yrðling sé það sama og fyrir fullorðin ref eða kr. 9.000,-. Þegar ríkið hefur gengið frá því hvert framlag þess verður fyrir yfristandandi veiðiár verður gjaldskráin endurskoðuð.
2.
Samþykkt um búfjárhald 2013
Nokkrar athugasemdir voru gerðar við fyrirliggjandi samþykkt um búfjárhald í Dalvíkurbyggð frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti.
Landbúnaðarráð þakkar ábendingarnar og leggur til við sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar að samþykktin verði samþykkt með áorðnum breytingum og send til ráðuneytisins til staðfestingar.
3.
Fjallskil og göngur 2013
Á fundi landbúnaðarráðs í maí 2011 var ákveðið að framvegis er stefnt að því að 1. göngur verði í öllum fjallskiladeildum Dalvíkurbyggðar um aðra helgi í september ár hvert þó aldrei síðar en í 21. viku sumars og að hrossasmölun og eftirleit í Skíðadalsafréttum verði 1. helgina í október.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
4.
Umsókn um búfjárleyfi, Jóhannes Kr. Björnsson
Jóhannes Kr. Björnsson sækir um leyfi til að halda 8 hross að Ytra-Holti, samkvæmt umsókn sem dagsett er 11. apríl 2013.
Landbúnaðarráð samþykkir erindið.
5.
Tungurétt, endurbygging.
Formaður gerði grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum við endurgerð Tunguréttar.Rætt var um fyrirhugaðar framkvæmdir og tafir á þeim vegna veðurfarsins sem hefur verið sl. haust og vetur. Einnig verður mikið álag á bændur og búarliði í sumar sem ætluðu að leggja fram vinnu vegna framkvæmdarinnar.
Landbúnaðarráð leggur til að framkvæmdum sumarsins verði frestað og málið tekið upp eftir réttir í haust.