Landbúnaðarráð
77. fundur
17. október 2012
kl.
13:00
-
15:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson
Formaður
Ottó B Jakobsson
Varaformaður
Elín Rósa Ragnarsdóttir
Aðalmaður
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Freyr Antonsson
Varamaður
Ingvar Kristinsson
Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Grenjavinnsla 2012
Lögð var fram skýrsla frá Haraldi Ólafssyni, Hauki Sigfússyni og Ólafi Sigurðssyni, grenjavinnslumönnum fyrir sumarið 2012. Þar voru upplýsingar um veiði þeirra og hvar hún átti sér stað.
Landbúnaðarráð þakkar veiðimönnum vel unnin störf.
2.
Tungurétt
Lögð var fram teikning af Tungurétt og ræddar hugmyndir um hvernig ætti að standa að því að ljúka framkvæmdum við hana.
Landbúnaðarráð samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að veitt verði kr. 2.000.000,- á fjárhagsáætlun 2013 til að ljúka gerð Tunguréttar. Um er að ræða fjármagn sem notað verður til efniskaupa til framkvæmdarinnar og að framangreind fjárhæð verði skuldbundin því að bændur og aðrir þeir sem réttina nota auk áhugafólks um framgangs verkefnisins leggi fram vinnu til þess að ljúka framkvæmdinni.