Fara í efni

Landbúnaðarráð

72. fundur
15. febrúar 2012 kl. 13:15 - 13:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson Sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Samþykkt um búfjárhald, endurskoðun 2012
Málsnúmer 201202026
Landbúnaðarráð hefur verið að endurskoða Samþykkt um búfjárhald í Dalvíkurbyggð og hefur fengið ýmsa aðila til þess að fá álit og tillögur. Það má nefna Ólaf Dýrmundsson og fjallskilastjóra í Dalvíkurbyggð.
Landbúnaðarráð samþykkir að óska eftir áliti Bændsamtaka Íslands á framlagðri Samþykkt um búfjárhald í Dalvíkurbyggð.</DIV>
2.
Umsókn um búfjárleyfi
Málsnúmer 201111055
Með bréfi sem dagsett er 11. nóvember 2011 óskar Sigurður Guðmundsson, Bessastöðum, leyfis til að halda kindur að Bessastöðum. Hann hefur hug á að hefja búrekstur haustið 2012.
Landbúnaðarráð samþykkir erindir en bendir Sigurði á að fylla þarf út umsókn um framangreint efni.</DIV>
3.
Breyting á samþykkt um Hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201202028
Í Dalvíkurbyggð hefur verið til sameiginleg samþykkt um hunda- og kattahald. Vegna ýmissa orsaka er talið heppilegt að breyta formi á framangreindri samþykkt og hafa þær tvær og ítarlegri. Nokkur tími er síðan að samþykkt um katthald var afgreidd í landbúnaðarráði og nú er komið að samþykkt um hundahald.
Landbúnaðarráð samþykkir að senda framagreindar samþykktir um til skoðunar hjá umhvefisráðuneyti og og öðrum þeim sem um þær þurfa að fjalla.</DIV>