Landbúnaðarráð
145. fundur
4. maí 2022
kl.
10:00
-
11:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson
formaður
Ingunn Magnúsdóttir
varaformaður
Freyr Antonsson
aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
embættismaður
Bjarni Daníel Daníelsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir
skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Merkingar hunda- og katta
Farið yfir fyrirkomulag við merkingar hunda og katta og tengsl við utanumhald með skráningum. Fyrir fundinum lá tilboð í nýjar merkingar fyrir dýrin, þar sem hægt er að setja nafn dýrs og símanúmer eiganda, sem einfaldar utanumhald og styttir boðleiðir.
Landbúnaðarráð leggur til að nýjar merkingar verði teknar upp og að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár verði gert ráð fyrir endurnýjun merkinga á eldri skráningum.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
2.
Fjallgirðingamál 2022
Farið yfir viðhaldsþörf fjallgirðinga í sveitarfélaginu.
Landbúnaðarráð fór yfir lista yfir girðingar á vegum sveitarfélgsins og reyndi að leggja mat á viðhaldsþörf þeirra. Þar sem enn á eftir að koma í ljós hver kostnaðurinn verður við almennt viðhald eftir veturinn verður ekki séð fyrr en að því loknu hversu mikið af girðingum verður hægt að endurnýja.
Landbúnaðarráð vill leggja áherslu á að fá Vegagerðina til þess að koma að veggirðingu við land Hamars og milli Brimnesár og Karlsár norðan Dalvíkur.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Landbúnaðarráð vill leggja áherslu á að fá Vegagerðina til þess að koma að veggirðingu við land Hamars og milli Brimnesár og Karlsár norðan Dalvíkur.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
3.
Umsókn um framkvæmdaleyfi til skógræktar á lögbýlinu Syðra-Holti
Fyrir fundinum lá umsókn frá Eiríki Knúti Gunnarssyni, dagsett 18. mars 2022, um framkvæmdaleyfi til skógræktar á lögbýlinu Syðra-Holti í Svarfaðardal. Fyrirhugað skógræktarsvæði er 36 hektarar og skiptist upp í þrjú svæði. Umhverfisráð vísaði erindinu til landbúnaðarráðs til umsagnar þar sem hluti svæðisins sem um er rætt er innan skilgreinds landbúnaðarlands í gildandi aðalskipulagi.
Landbúnaðarráð gerir engar athugasemdir við skógrækt á svæðinu sem afmarkast af hnitum 5 til 13. Skoða þarf vel svæðið milli hnita 4 og 5 m.t.t. snjósöfnunar við veg og vegna þess að um er að ræða ræktað land. Landbúnaðarráð leggst gegn því að skógrækt verði leyfð á svæði sem afmarkast af hnitum 1-3 neðan við veg af sömu ástæðum og telur að mikil hætta geti skapast vegna snjósöfnunar.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.