Fara í efni

Landbúnaðarráð

140. fundur
26. ágúst 2021 kl. 09:00 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson Formaður
Ingunn Magnúsdóttir varaformaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir embættismaður
Bjarni Daníel Daníelsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir skipulags- og tæknifulltrúi
Dagskrá
1.
Árgerði - landsvæði umhverfis lóð
Málsnúmer 202107075
Með tölvupósti dagsettum 20. júlí 2021 óskar Ragnheiður Lára Weisshappel eftir því að fá tún umhverfis hús sitt í Árgerði til umráða á móti því að hugsa um svæðið, slá og halda snyrtilegu. Meðfylgjandi er uppdráttur af umræddu túni.Umhverfisráð tók jákvætt í erindið á fundi sínum þann 13. ágúst sl. og fól skipulags- og tæknifulltrúa að ganga frá samningi við eigendur Árgerðis um leigu á landi sveitarfélagsins í kring um Árgerði og koma með fyrir næsta fund ráðsins.
Landbúnaðarráð tekur undir bókun umhverfisráðs og leggur til að formlegur samningur verði gerður við eigendur Árgerðis.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
2.
Mánaðarlegar skýrslur bókhalds 2021 vs. áætlun fyrir fagráð
Málsnúmer 202102005
Lagt fram til kynningar.
3.
Endurskoðun á samþykktum og gjaldskrám landbúnaðarráðs.
Málsnúmer 202106080
Lagt fram til kynningar.
4.
Fjárhagsáætlun 2022
Málsnúmer 202108009
Fyrsta umræða um fjárhagsáætlun ársins 2022.
Rætt um mál sem varða girðingar í sveitarfélaginu og framtíðarfyrirkomulag þeirra.
5.
Eftirlit með velferð dýra
Málsnúmer 202108062
Ábendingar hafa borist sveitarfélaginu varðandi aðbúnað, velferð og umhverfi dýra. Farið var yfir þá verkferla sem eftirlitsstofnunum ber að fara eftir.
Landbúnaðarráð felur skipulags- og tæknifulltrúa að skoða ábyrgð og úrræði sveitarfélagsins í þessum málum og koma með fyrir næsta fund ráðsins.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.