Landbúnaðarráð
137. fundur
16. febrúar 2021
kl.
09:00
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson
formaður
Ingunn Magnúsdóttir
varaformaður
Freyr Antonsson
aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð
Til umræðu bætt fyrirkomulag á framfylgni samþykkta um hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð. Undir þessum lið kom inn á fundinn Steinþór Björnsson, deildarstjóri eigna-og framkvæmdadeildar, kl. 09:01 og fór yfir stöðu væntanlegs samstarfs við Akureyrarbæ. Steinþór vék af fundi kl. 09:15
Ráðið þakkar Steinþóri fyrir yfirferðina og vonast til að niðurstaða verði komin í samstarfið fyrir næsta fund ráðsins í mars.
2.
Fundargerðir fjallskiladeilda 2020
Lagðar fram til kynningar fundargerðir fjallskildeilda Árskógs og Svarfdæladeilda.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við fundargerð fjallskiladeildar Svarfdæladeildar.
Þar sem ákvörðun Árskógsdeildar um að framvegis verði gangnaseðill eingöngu birtur á heimasíðu Dalvíkurbyggðar vill ráðið árétta.
Samkvæmt gr. 14 í fjallskilasamþykkt fyrir sveitarfélög við Eyjafjörð ber fjallskiladeild að senda út gangnaseðla.
Landbúnaðarráð leggur því til að samhliða auglýsingu um niðurröðun gangaskila að hausti verði fjáreigendum einnig sent bréf eða tölvupóstur þar sem óskað er eftir staðfestingu á móttöku.

3.
Erindisbréf landbúnaðarráðs og umhverfisráðs
Til umræðu erindisbréf landbúnaðar og umhverfisráðs.
Landbúnaðarráð telur að ráðið skuli fá til umsagnar þau málefni sem hafa með dreifbýli í Dalvíkurbyggð að gera.
Samkvæmt gildandi erindisbréfi ráðsins skal ráðið vera til umsagnar um landnýtingu í dreifbýli.
Samkvæmt gildandi erindisbréfi ráðsins skal ráðið vera til umsagnar um landnýtingu í dreifbýli.
4.
Til umsagnar frumvarp til laga um jarðalög (einföldun regluverks, vernd landbúnaðarlands, upplýsingaskyldu o.fl), 375. mál.
Með innsendu erindi dags. 21. janúar 2021 óskar atvinnuveganefnd Alþingis eftir umsögn um frumvarp til laga um jarðalög (einföldun regluverks, vernd landbúnaðarlands, upplýsingaskyldu o.fl), 375. mál.
Lagt fram til kynningar.
5.
Úttekt á hættu vegna skriðufalla í dreifbýli Dalvíkurbyggð
Til umræðu hætta á skriðuföllum í dreifbýli Dalvíkurbyggðar.
Landbúnaðarráð leggur til við sveitarstjórn að unnin verði jarðfræðileg úttekt og hættumat vegna mögulegra skriðufalla við byggð í sveitarfélaginu.
6.
Fjallgirðingarmál 2021
Til umræðu fjallgirðingarmál 2021
Lögð fram til kynningar samantekt fjallgirðinga í Dalvíkurbyggð sem send var Vegagerðinni.
Einnig farið yfir áætlun 2021 fyrir fjallgirðingar í Dalvíkurbyggð.
Einnig farið yfir áætlun 2021 fyrir fjallgirðingar í Dalvíkurbyggð.