Landbúnaðarráð
133. fundur
10. júní 2020
kl.
09:00
-
12:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson
formaður
Ingunn Magnúsdóttir
varaformaður
Freyr Antonsson
aðalmaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir
aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Umsókn um búfjárleyfi
Með innsendu erindi dags. 28. maí 2020 óskar Þuríður Kristín Sigurvinsdóttir eftir búfjárleyfi fyrir fimm hænur að Karlsbraut 18, Dalvík.Jafnframt er óskað eftir að gildandi búfjárleyfi Benedikts Snæs falli niður.
Landbúnaðarráð samþykkir umsóknina fyrir allt að fimm hænur, en bendir á að hanar eru með öllu bannaðir í þéttbýli. Jafnframt er fellt úr gildi áður útgefið leyfi fyrir Benedikt Snæ Magnússon á sömu lóð.
Aðbúnaður þarf að uppfylla lög og reglur um velferð dýra og skal haft samráð við byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Aðbúnaður þarf að uppfylla lög og reglur um velferð dýra og skal haft samráð við byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Umsókn um búfjárhald
Með innsendu erindi dags. 28. maí 2020 óskar Þórhallur S Jónsson eftir búfjárleyfi fyrir 10 hænur og tvær kanínur að Karlsbraut 18 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Landbúnaðarráð hafnar umsókn fyrir 10 hænur þar sem þegar hefur verið veitt leyfi fyrir allt að fimm hænum við Karlsbraut 18.
Ráðið gefur leyfi fyrir tveimur kanínum.
Aðbúnaður þarf að uppfylla lög og reglur um velferð dýra og skal haft samráð við byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Ráðið gefur leyfi fyrir tveimur kanínum.
Aðbúnaður þarf að uppfylla lög og reglur um velferð dýra og skal haft samráð við byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Kynning á gæludýraskráningarkerfi
Kynning á gæludýraskráningarkerfi frá Pet PLUS ehf. Undir þessu lið kom inn á fundinn Ómar Már Jónsson kl. 10:03Ómar vék af fundi kl. 10:42
Landbúnaðarráð þakkar Ómari fyrir kynninguna og felur sviðsstjóra að skoða málið frekar.
4.
Fjallskilamál Dalvíkurdeildar
Fjallskilamál í Dalvíkurdeild
Lögð fram til kynningar fundargerð frá samráðsfundi með fjallskiladeild Dalvíkur ásamt ráðgjafa dags. 08. júní 2020.
5.
Girðingarmál í Dalvíkurdeild
Til umræðu girðingarmál í Dalvíkurdeild.
Lanbúnaðarráð leggur til að gert sé átak í lagfæringum á núverandi girðingum.
Ráðið er ekki með fjármagn í fjárhagsáætlun fyrir frekari endurbyggingu en nú er í gangi.
Ráðið er ekki með fjármagn í fjárhagsáætlun fyrir frekari endurbyggingu en nú er í gangi.
6.
Fjallgirðingarmál 2020
Til umræðu endurnýjun fjallgirðingar á Árskógsströnd
Landbúnaðarráð felur sviðsstjóra og formanni ráðsins að ganga frá samningum við verktaka samkvæmt þeim tilboðum sem liggja fyrir.