Fara í efni

Landbúnaðarráð

128. fundur
8. ágúst 2019 kl. 08:15 - 09:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson formaður
Ingunn Magnúsdóttir varaformaður
Freyr Antonsson aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Breytingar á reglum um fjármál sveitarfélaga við gildistöku núverandi sveitarstjórnarlaga
Málsnúmer 201904116
Tekið fyrir erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dagsett þann 23. apríl 2019, þar sem kynnt er frumkvæðisathugun ráðuneytisins frá því í janúar 2018 á grundvelli XI. kafla sveitarstjórnarlaga á því hvort og þá hvernig staðið hefði verið að breytingum á fjárhagsáætlunum þeirra sveitarfélaga þar sem misræmi á innsendum fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2016 og ársreikningum þeirra fyrir sama ár nam 5% eða meira. Það voru 26 sveitarfélög og var óskað eftir upplýsingum og skýringum frá hverju þeirra. Athugun ráðuneytisins hefur leitt i ljós að á umræddu ári var töluverður misbrestur á því að leitað væri heimildar sveitarstjórnar fyrir auknum útgjöldum og fjárfestingum áður en til þeirra var stofnað. Þessar niðurstöður leiða í ljós að framkvæmd fjárhagsáætlunar ársins 2016 var ekki í fullu samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga hjá a.m.k. þriðjungi sveitarfélaga landsins. Þeim sveitarfélögum sem tekin voru til skoðunar hefur þegar verið tilkynnt um niðurstöður athugarinnar. Ráðuneytið telur á hinn bóginn einnig mikilvægt að kynna öðrum sveitarfélögum þessa niðurstöðu og hvetja þau til að gæta þess að fjármálastjórn sé ávallt í fullu samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og reglugerðar um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015. Að síðustu skal það upplýst að ráðuneytið hyggst haustið 2020 gera að nýju könnun á framkvæmd sveitarfélaga að þessu leyti, nú vegna fjárhagsáætlana og ársreikninga 2019. Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar
2.
Ósk um breytingu á gangnadögum 2019
Málsnúmer 201906012
Tekið fyrir erindi frá Zophoníasi Inga Jónmundssyni dags. 28. maí 2019 þar sem óskað er eftir breytingum á auglýstum gangnadögum.
Eins og áður hefur komið fram hefur Landbúnaðarráð ekki sett sig upp á móti að bændur smali sín heimaupprekstarlönd á sína ábyrgð vegna sumarslátrunar óháð auglýstum gangnadögum, en taka skal fram að ef komi fram ókunnugt fé við þannig smölun þá skal því komið aftur á fjall.
Landbúnaðarráð hafnar erindi Zophoníasar um að smalanir í heimaupprekstrarlöndum til sumarslátrunar í ágústmánuði teljist til gangnadagsverka að hausti. Hinsvegar skal bent á þann möguleika sem hefur verið notaður í einstaka fjallskiladeildum að ef lítil kindavon er á vissum svæðum og þau svæði mun auðveldari til smölunar en önnur svæði innan sömu deildar, að hafa allt að helmingi fleiri kindur á bakvið hvert gangnaskil á þeim svæðum. Fjallskilanefndir viðkomandi deildar geta tekið ákvarðanir um slíka tilhögun.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

3.
Umsókn um breytingu á vegi við Kóngsstaði í Skíðadal
Málsnúmer 201809016
Fyrir liggur fjármagn úr styrkvegasjóði Vegagerðarinnar vegna tilfærslu á vegslóða við Kóngsstaði sem liggur að Skíðadalsafrétt.Formaður landbúnaðarráðs hefur með fulltrúum Kóngsstaða afmarkað tiltekið svæði fyrir nýjan vegaslóða.
Sviðsstjóri upplýsti ráðið um að styrkur hafi borist í verkefnið og framkvæmdir á áætlun.
4.
Fjallgirðing á Árskógsströnd 2019
Málsnúmer 201902070
Til umræðu staða endurnýjunar og viðhalds fjallgirðingar á Árskógsströnd 2019
Sviðsstjóri og formaður upplýstu ráðið um framgang verkefnisins miðað við áætlun ársins.