Fara í efni

Landbúnaðarráð

125. fundur
28. febrúar 2019 kl. 13:00 - 13:50
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson Formaður
Ingunn Magnúsdóttir varaformaður
Freyr Antonsson aðalmaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Varðar erindi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um fjallgirðingar
Málsnúmer 201902144
Til afgreiðslu innsent erindi dags. 11. febrúar 2019 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem óskað er umsagnar sveitarfélagsins á erindi frá 14. maí 2018 er varðar fjallgirðingar.
Landbúnaðarráð felur sviðsstjóra að senda framlagða umsögn unna af Pacta lögmönnum í samráði við landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar, en þar er gert nánar grein fyrir afgreiðslu ráðsins frá 14. maí 2018.