Landbúnaðarráð
123. fundur
13. desember 2018
kl.
09:00
-
11:45
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson
formaður
Ingunn Magnúsdóttir
varaformaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir
aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Umsókn um búfjárleyfi
Með innsendu erindi dags. 26. nóvember 2018 óskar Freydís Dana Sigurðardóttir eftir búfjárleyfi fyrir 12. hross samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Landbúnaðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá búfjárleyfi fyrir 12 hross.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
2.
Endurskoðun á samþykkt um hundahald í Dalvíkurbyggð
Til umræðu endurskoðun á samþykkt um hundahald í Dalvíkurbyggð frá 2013
Ráðið felur sviðsstjóra að útbúa drög að breytingum á samþykktinni fyrir næsta fund ráðsins. Ráðið leggur áherslu á að húsnæði sem ekki tilheyrir búrekstri og er til útleigu falli undir sömu kvaðir og húsnæði í þéttbýli, þar sem fram kemur í gr. 2 að hámarksfjöldi hunda eru tveir. Sama á við um íbúðahúsalóðir í dreifbýli.
3.
Fundargerðir fjallskiladeilda 2018
Lögð fram til kynningar fundargerð fjallskilanefndar Svarfdæladeildar frá 21. ágúst 2018.Tekin til umræðu fundargerð fjallskiladeildar Dalvíkurdeildar frá 29. ágúst 2018. Undir þessum lið kom inn á fundinn kl. 10:05 fjallskilastjóri Dalvíkurdeildar Sigurbjörg Einarsdóttir.
Sigurbjörg vék af fundi kl. 11:38
Ráðið gerir ekki athugasemdir við fundargerð Svarfdæladeildar.
Ráðið þakkar Sigurbjörgu fyrir umræðurnar og leggur áherslu á að klára samkomulag um fyrirkomulag gangaskila í Dalvíkurdeild.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við fundargerð Svarfdæladeildar.
Ráðið þakkar Sigurbjörgu fyrir umræðurnar og leggur áherslu á að klára samkomulag um fyrirkomulag gangaskila í Dalvíkurdeild.
4.
Fjallgirðing Árskógsströnd 2017
Til umræðu samantekt á kostnaði við endurnýjun fjallgirðingar.
Umræðu frestað til næsta fundar.