Fara í efni

Landbúnaðarráð

116. fundur
15. mars 2018 kl. 10:15 - 12:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson Formaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Ottó B Jakobsson Varamaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Gangnaseðill - Dalvíkurdeild 2017
Málsnúmer 201708093
Á 114. fundi landbúnaðarráðs þann 16. nóvember 2017 var eftirfarandi bókað."Til kynningar og umræðu gangnaseðill fyrir Dalvíkurdeild 2017.Landbúnaðarráð gerir athugasemdir við gangnaseðilinn og felur sviðsstjóra að boða fjallskilastjóra á næsta fund ráðsins.Samþykkt með fimm atkvæðum."Undir þessum lið kom inn á fundinn kl. 10:18 fjallskilastjóri Dalvíkurdeildar Sigurbjörg Einarsdóttir, Hóli.

Ráðið þakkar Sigurbjörgu fyrir umræðuna um fjallskil ofl.
2.
Fundargerðir Fjallskiladeilda 2017
Málsnúmer 201710042
Á 114. fundi landbúnaðarráðs þann 17. nóvember 2017 var eftirfarandi bókað.'Landbúnaðarráð gerir athugasemdir við niðurröðun dagsverka og felur sviðsstjóra að boða fjallskilastjóra á næsta fund ráðsins.Ráðið gerir einnig athugasemdir við innsendan reikning.Samþykkt með fimm atkvæðum.'
Sigurbjörg vék af fundi kl. 11:23

Ráðið felur sviðsstjóra að leyta álits lögfræðings Bændasamtakanna á túlkun leigusamninga á landi Dalvíkurbyggðar.

Samþykkt samhljóða.

3.
Fjallgirðing Árskógsströnd 2017
Málsnúmer 201705139
Til umræðu yfirlýsingar vegna fjallgirðinga á Árskógsströnd og áframhaldandi vinna við endurnýjun á girðingunni.
Ráðið felur sviðsstjóra að semja bréf til landeigenda á Árskógsströnd varðandi bindandi samkomulags hvað varðar fjallgirðingar.

Samþykkt sammhjóða.
4.
Leiga á beiti og slægjulöndum
Málsnúmer 201311057
Til umræðu leiga á beiti og slægjulöndum í Dalvíkurbyggð.
Ráðið leggur áherslu á að gengið verði frá nýjum samningum um þau leigulönd sem eftir er að ganga formlega frá.

Samþykkt samhljóða.
5.
Umsókn um búfjárhald
Málsnúmer 201712105
Með innsendu erindi dags. 22. desember 2017 óskar Reynir Hjartarsson eftir búfjárleyfi fyrir tvö hross samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt samhljóða
6.
Umsókn um beitiland
Málsnúmer 201711103
Með innsendu erindi dags. 23. nóvember 2017 óskar Felix Rafn Felixsson eftir 15-20 Ha beitilandi til leigu.
Ráðið samþykkir að veita Felix umbeðið land til leigu og felur sviðsstjóra að gera leigusamning.

Samþykkt samhljóða.
7.
Styrkvegir 2018
Málsnúmer 201803053
Til umræðu umsókn í Styrkvegasjóð 2018
Landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar felur sviðsstjóra að leggja fram umsókn í Styrkvegasjóð til lagfæringa og endurbóta á veginum inn á afréttir sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.