Landbúnaðarráð
108. fundur
10. nóvember 2016
kl.
10:00
-
11:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson
Formaður
Freyr Antonsson
Varaformaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir
Aðalmaður
Gunnsteinn Þorgilsson
Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson
sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Flutningur á fé
Undir þessum lið komu Bjarni Th Bjarnason og Sigurður Bjarni Sigurðsson inn á fundinn kl. 10:10Með innsendu erindi dags. 8. nóvember óskar Sigurður Bjarni Sigurðsson eftir því að landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar taki til umræðu meinta fjárflutninga án vitneskju og eða samþykkis eiganda.
Landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar þakkar Sigurði Bjarna fyrir veittar upplýsingar.
Ráðið vill brýna fyrir bændum að gert sé við fjallgirðingar að vori eins fljótt og hægt er eftir að snjóa leysir.
Þurfi að flytja ókunnugt fé af heimalöndum til afréttar sé það gert í samráði við eiganda viðkomandi fjár.
Sigurður Bjarni Sigurðsson vék af fundi kl. 10:25
Ráðið vill brýna fyrir bændum að gert sé við fjallgirðingar að vori eins fljótt og hægt er eftir að snjóa leysir.
Þurfi að flytja ókunnugt fé af heimalöndum til afréttar sé það gert í samráði við eiganda viðkomandi fjár.
Sigurður Bjarni Sigurðsson vék af fundi kl. 10:25
2.
Samningur við gangnamannafélag Sveitsstaðaafréttar.
Til umræðu samningur Dalvíkurbyggðar við gangnmannafélag Sveinsstaðaafréttar frá 2011.
Ráðið felur sviðsstjóra að ræða endurskoðun á gildandi samningi við gangnamannafélagið og afla upplýsinga um forsendur samningsins.
Bjarni Th Bjarnason sveitarstjóri vék af fundi kl. 11:15
Bjarni Th Bjarnason sveitarstjóri vék af fundi kl. 11:15
3.
Ritun fundargerða
Til umræðu ritun fundargerða.
Lagt fram til kynningar.
4.
Umsókn um leyfi til búfjárhalds
Með innsendu erindi dags. 24. október 2016 óskar Sólborg Friðbjörnsdóttir eftir búfjárleyfi fyrir fjórar hænur samkvæmt meðfylgjandi umsókn.
Ráðið gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
5.
Stöðumat janúar - september 2016
Til kynningar stöðumat umhverfis- og tæknisviðs fyrir janúar-september 2016
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlagt stöðumat.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.