Fara í efni

Landbúnaðarráð

107. fundur
20. september 2016 kl. 10:00 - 11:15
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson Formaður
Freyr Antonsson Varaformaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Gunnsteinn Þorgilsson Aðalmaður
Daði Valdimarsson Varamaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Málsnúmer 201604102
Til kynningar mánaðarleg stöðuskýrsla.
Lagt fram til kynningar.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis og tæknisviðs 2017
Málsnúmer 201609080
Til umræðu starfs- og fjárhagsáætlun 2017.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn. Ráðið leggur þó til að tryggt verði fjármagn til endurbyggingar á brú yfir Holá í Skíðadal.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
3.
Gjaldskrár landbúnaðarráðs Dalvíkurbyggðar 2017
Málsnúmer 201609085
Til kynningar tillaga að gjaldskrám 2017.
Ráðið leggur til að allar framlagðar gjaldskrár verði tengdar vísitölu neysluverðs og uppreiknist einu sinni á ári.
Að öðru leyti gerir ráðið ekki athugasemdir við framlagðar gjaldskrár.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
4.
Erindi vegna breytingar á fyrirkomulagi gangna í Árskógsdeild 2016.
Málsnúmer 201609046
Með innsendum rafpósti dags. 6. september 2016 óskar Guðlaugur Axel Ásólfsson eftir því að landbúnaðarráð endurskoði ákvörðun sína frá 106. fundi ráðsins þann 11. ágúst 2016 er varðar ósk fjallskiladeildar Árskógsdeildar um breytt fyrirkomulag gangna haustið 2016.
Erindið lagt fram til kynningar ásamt svarbréfi sem sent var bréfritara 7. september 2016.
5.
Skil á skýrslum vegna refa- og minkaveiða 2015/2016
Málsnúmer 201609072
Bréf dags. 12. september 2016 frá Umhverfisstofnun vegna skila á refa- og minkaskýrslum 2015/2016.
Lagt fram til kynningar.