Fara í efni

Landbúnaðarráð

105. fundur
15. júní 2016 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Þórarinsson Formaður
Freyr Antonsson Varaformaður
Gunnsteinn Þorgilsson Aðalmaður
Guðrún Anna Óskarsdóttir aðalmaður
Þorleifur Albert Reimarsson Varamaður
Starfsmenn
Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
1.
Uppsögn á starfi fjallskilastjóra
Málsnúmer 201605137
Með bréfi dags. 27. maí 2016 tilkynnir Sylvía Ósk Ómarsdóttir að hún segi sig frá fjallskilastjórastarfi Svarfaðardalsdeildar.
Landbúnaðarráð þakkar Sylvíu Ósk Ómarsdóttur vel unnin störf og leggur til að Árni Sigurður Þórarinsson Hofi verði nýr fjallskilastjóri Svarfaðardalsdeildar og Kristín Sigurhanna Sigtryggsdóttir Hofi til vara.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
2.
Endurskoðun á samningi Umhverfisstofnunar og sveitarfélaga um refaveiðar 2014 - 2016
Málsnúmer 201605097
Til kynningar endurskoðun á samningi umhverfisstofnunar og sveitarfélaga um refaveiðar 2014-2016.
Lagt fram til kynningar.
3.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Málsnúmer 201604102
Lagt fram til kynningar.
Landbúnaðarráð fagnar framlögðum upplýsingum.
4.
Umsókn um búfjárleyfi
Málsnúmer 201606031
Freyr Antonsson vék af fundi 08:55.Með innsendu erindi dags. 7. júní 2016 óskar Jón Emil Gylfason eftir búfjárleyfi fyrir 18 hross samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Landbúnaðarráð gerir ekki athugasemdir við að veita umbeðið leyfi og felur sviðsstjóra að veita leyfi.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
5.
Endurskoðun á reglum um kattahald
Málsnúmer 201605132
Til umræðu endurskoðun á samþykkt um kattahald í Dalvíkurbyggð.
Landbúnaðarráð þakkar þeim Alfred og Val fyrir greinargóða yfirferð á málinu og felur sviðsstjóra og umhverfisstjóra að sjá til þess að framfylgja þeim ákvæðum sem fram koma í samþykkt um kattahald frá 2. janúar 2013 og kanna samstarf við Akureyrarbæ varðandi dýravörslu.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.