Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

97. fundur
4. janúar 2018 kl. 17:00 - 17:40
í stóra salnum í Bergi
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson varaformaður
Íris Hauksdóttir Aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir Aðalmaður
Zbigniew Kolodziejczyk aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson formaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð 2017
Málsnúmer 201710051
Þessi fundarliður fór fram á opnu boði íþrótta- og æskulýðsráðs í Menningahúsinu Bergi kl. 17:00. Afhentir voru styrkir til einstaklinga úr afreks- og styrktarsjóði fyrir árið 2017.
2.
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2017
Málsnúmer 201711010
Þessi fundarliður fór fram á opnu boði íþrótta- og æskulýðsráðs í Menningahúsinu Bergi kl. 17:00 og stóð til 17:40. Ekki var fleira gert eftir athöfnina og fundi slitið.

Kristinn Ingi Valsson, formaður íþrótta- og æskulýðsráðs bauð gesti velkomna og bauð gestum að þiggja veitingar.

Tilnefndir til Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2017 voru eftirfarandi:
Andrea Björk Birkisdóttir - Skíðafélag Dalvíkur
Amalía Nanna Júlíusdóttir - Sundfélagið Rán
Amanda Guðrún Bjarnadóttir - Golfklúbburinn Hamar
Ingvi Örn Friðriksson - tilnefndur af íþrótta- og æskulýðsráði eftir ábendingu frá Kraftlyftingarfélagi Akureyrar.
Svavar Örn Hreiðarsson - Hestamannafélagið Hringur
Viktor Hugi júlíusson - Frjálsíþróttadeild UMFS

Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2017 er Svavar Örn Hreiðarsson hestamaður hjá Hestamannafélaginu Hring.

Íþrótta- og æskulýðsráð óskar öllum þeim sem tilnefndir voru til hamingju með tilnefninguna og Svavari Erni til hamingju með að vera Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2017.

Íþrótta- og æskulýðsráð þakkað öllum þeim sem aðstoðuðu við undirbúning á kjörinu og nemendum Tónlistarskólans á Tröllaskaga fyrir tónlistarflutning á athöfninni.