Íþrótta- og æskulýðsráð
92. fundur
5. september 2017
kl.
08:15
-
10:25
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
varaformaður
Íris Hauksdóttir
Aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
Aðalmaður
Zbigniew Kolodziejczyk
aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson
formaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
Starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021
Íþrótta- og æskulýðsráð fór yfir áherslur við gerð starfs-og fjárhagsáætlunar. Rætt var um forgangsröðun verkefna. Umræður sköpuðust um fyrirkomulag á starfi íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og annarra starfsmanna sem undir hann heyra. Ráðið leggur til að skoðað verði hvort hægt sé að endurskipuleggja/búa til starf millistjórnanda fyrir íþróttamiðstöð, er varðar m.a. húsvörslu, rekstur á kerfum, starfsmannahald og ýmislegt fleira. Þetta yrði gert vegna áherslubreytinga á starfi íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Ráðið mun funda aftur 18. september kl. 16:30 þar sem farið verður yfir endanlega starfs- og fjárhagsáætlun.