Íþrótta- og æskulýðsráð
86. fundur
7. febrúar 2017
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
varaformaður
Íris Hauksdóttir
Aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
Aðalmaður
Zbigniew Kolodziejczyk
aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson
formaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
Starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og Hlynur Sigursveinsson Sviðsstjóri.
Dagskrá
1.
Sameiginlegur framkvæmdastjóri Skíðafélags Dalvíkur og Golfklúbbsins Hamars
Farið var yfir stöðu mála er varðar sameiginlegan starfsmann skíðasvæðis og golfvallar.
Íþrótta- og æskulýðsráð leggur til að kalla á fund formenn félaganna og ræða framhaldið.
3.
Framtíðarrekstur Sundskála Svarfdæla
Gísli Rúnar kom inn á fundinn kl. 9:50Til umræðu var fundur um framtíðarrekstur Sundskála Svarfdæla sem haldinn var á Rimum 1. febrúar 2017.
Fram fór umræða um stöðuna og óskar ráðið eftir að mæta á fund byggðaráðs og ræða framtíðaráform Sundskálans.
4.
Framkvæmdir og viðhald við sundlaug Dalvíkur
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti væntanlegar framkvæmdir við sundlaugina á Dalvík. Útboðsgögn verða opnuð miðvikudaginn 8. febrúar kl. 14:00.
5.
Áætlun vegna dekkjakurls
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 6. janúar 2017, þar sem fram kemur að umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út áætlun um að kurluðu dekkjagúmmi verði skipt út fyrir hættuminna efni á leik- og íþróttavöllum. Þann 2. júní 2016 samþykkti Alþingi þingsályktun nr. 50/145 um bann við notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttaavöllum.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að vísa þessu til umræðu við gerð fjárhagsáætlunar næsta haust.
6.
Umsóknir um Landsmót 2020
UMFÍ hefur auglýst eftir umsóknum vegna Unglingalandsmót UMFÍ árið 2020 og Landsmót UMFÍ 50 árið 2019.
Lagt fram til kynningar.
7.
Reglur um afreks- og styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs
Frestað til næsta fundar.
8.
Reglur um kjör á íþróttamanni ársins
Frestað til næsta fundar.