Íþrótta- og æskulýðsráð
78. fundur
3. maí 2016
kl.
15:00
-
18:00
í félagsheimilinu Árskógi
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
varaformaður
Íris Hauksdóttir
Aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
Aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson
formaður
Helena Frímannsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Skólastarf í Árskógi
Á 204. fundi fræðsluráðs var lagt til að ákvörðum um fyrirkomulag á rekstri félagsheimilisins Árskógar yrði vísað til íþrótta-og æskulýðsráðs sem skoði málið samhliða vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun á komandi hausti.
Skýrsla starfshóps um eflingu og framtíð Árskógarskóla og starfsemi í Árskógi lögð fram til kynningar.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að taka málið samhliða gerð starfs- og fjárhagsáætlunar í haust.
Skýrsla starfshóps um eflingu og framtíð Árskógarskóla og starfsemi í Árskógi lögð fram til kynningar.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að taka málið samhliða gerð starfs- og fjárhagsáætlunar í haust.
2.
Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2016
Undir þessum lið og það sem eftir var fundar komu eftirfarandi aðilar á fundinn til að kynna niðurstöður ársreiknings og skýrslu sem og til samráðs um aðra þætti: Einar Hafliðason - Þorsteinn Svörfuður Kristján Ólafsson - UMFS Ingibjörg María Ingvadóttir -Frjálsíþróttadeild UMFS Margrét Víkingsdóttir - Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS Eva Björg Guðmundsdóttir - Fimleikadeild UMFSStefán Garðar Níelsson - Dalvík-ReynirGísli Bjarnason og Marsibil Sigurðardóttir - Golfklúbburinn HamarLilja Björk Reynisdóttir - Hestamannafélagið HringurSnæþór Arnþórsson - Skíðafélag DalvíkurMarinó Þorsteinsson - Ungmennafélagið ReynirElín B Unnarsdóttir - Sundfélagið RánGuðríður Sveinsdóttir - Blakfélagið RimarKári Ellertsson - Framkvæmdarstjóri Skíðafélagsins og Golfklúbbsins.Formaður bauð fundarmenn velkomna og boðið var upp á kaffiveitingar. Kvenfélaginu Hvöt eru færðar bestu þakkir fyrir góðar veitingar.Í framhaldinu var umræða um eftirfarandi þætti: Eineltisáætlanir íþróttafélaganna:Farið var yfir stöðuna varðandi eineltisáætlanir íþróttafélaganna í Dalvíkurbyggð. Aðilar samþykkir því að það þurfi að skerpa á þessum hlutum og mun íþrótta- og æskulýðsfulltrúi stýra því verkefni og mun hann kalla saman félögin eftir þörfum. Fræðsluakedemía:Margrét Víkingsdóttir, formaður Barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar UMFS, kynnti hvað er búið að gera í tengslum við verkefnið. Búið er að halda námskeið fyrir börn og ungmenni og eru aðilar sammála því að halda þurfi einnig utanum þjálfara. Uppbygging á aðstöðu íþróttafélaganna:Rætt um aðstöðumál og framtíðaruppbyggingu íþróttafélaganna.
3.
Ársreikningar íþróttafélaga 2015
Gerðu fulltrúar íþróttafélaganna grein fyrir helstu verkefnum og lykiltölum í ársreikningum félaganna.
Almennt er blómlegt starf í öllum félögunum en fjárhagsleg staða þeirra misjöfn.
Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs þakkaði fundarmönnum kærlega fyrir fundinn og ítrekaði hversu dýrmætt það væri fyrir félögin að hafa sjálfboðaliða að störfum sem margir hverjir leggja mikið á sig.
Almennt er blómlegt starf í öllum félögunum en fjárhagsleg staða þeirra misjöfn.
Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs þakkaði fundarmönnum kærlega fyrir fundinn og ítrekaði hversu dýrmætt það væri fyrir félögin að hafa sjálfboðaliða að störfum sem margir hverjir leggja mikið á sig.