Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

75. fundur
2. febrúar 2016 kl. 08:15 - 09:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Þórunn Andrésdóttir Aðalmaður
Zbigniew Kolodziejczyk aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson varaformaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Skrifstofa UMSE
Málsnúmer 201512086
íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að næsti fundur verði þriðjudaginn 1. mars kl. 16:00 og stjórn og framkvæmdarstjóra UMSE verði boðið á fundinn til að ræða um skrifstofu UMSE.
2.
Fjárhagsáætlun 2015; Möguleg ný staðsetning á nýjum Golfvelli GHD.
Málsnúmer 201409031
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti skýrslu vegna möguleika á nýjum golfvelli sem unnin var af Edwin Roald.
3.
Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2016
Málsnúmer 201601147
Samþykkt að vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs verði þriðjudaginn 3. maí kl. 16:00 í Árskógi. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að boða fulltrúa íþróttafélagana á fund og óska eftir tillögum að umræðuefni á fundinum.
4.
Heilsueflandi Samfélag verkefni 2015/16
Málsnúmer 201601148
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti þau verkefni sem framundan eru í tengslum við verkefnið Heilsueflandi samfélag.
5.
Endurnýjun á Gúmmíi sparkvallar
Málsnúmer 201509187
Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um sem Um­hverf­is­stofn­un hef­ur fengið frá hinum lönd­un­um á Norður­lönd­um þykja rann­sókn­ir benda til þess að ekki sé ástæða til að banna dekkjak­url. Lagt fram til upplýsinga.
6.
Endurnýjun líkamsræktartækja
Málsnúmer 201601149
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi lagði fram tilboð frá Erninum um endurnýjun líkamsræktartækja. Tilboðið hljóðar upp á að fá búnað á endurnýjunaráætlun árið 2016 og 2017 afhentan strax en greiða sem nemur 3.100.000.- í ár, sem er í fjárhagsáætlun og 3.000.000.- í byrjun árs 2017.
Íþrótta- og æskulýðsráð óskar eftir því við sveitarstjórn að íþrótta- og æskulýðsfulltrúa verði veitt heimild til kaupana á þessu ári og þessar þrjár milljónir verði settar á áætlun og greiddar árið 2017.