Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

67. fundur
21. apríl 2015 kl. 08:15 - 10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristinn Ingi Valsson Formaður
Jón Ingi Sveinsson Varaformaður
Íris Hauksdóttir Aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir Aðalmaður
Andrea Ragúels Víðisdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri og Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárfesting og lántaka; Golfhermir
Málsnúmer 201504056
Undir þessum lið sat Gísli Bjarnason formaður Golfklúbbsins Hamars fundinn.

Farið var yfir kaup Golfklúbbsins á nýjum Golfhermi en kostnaðurinn við hann nam um kr. 2.000.000. Golfklúbburinn tók lán hjá Lýsingu fyrir 70% af kaupverðinu. Vonir standa til að auknar tekjur vegna notkunar á honum standi undir afborgunum af lánunum.

Íþrótta- og æskulýðsráð minnir á að íþróttafélögum er ekki heimilt að skuldsetja sig án vitundar og samþykkis sveitarfélagsins og vísar þessu til frekari umræðu á vorfundi ráðsins og íþróttafélaganna.
2.
Þjónustusamningur á milli Dalvíkurskóla og Íþróttamiðstöðvar
Málsnúmer 201503011
Með fundaboði fylgdi afrit af þjónustusamningur á milli Dalvíkurskóla og Íþróttarmiðstöðvar.

Lagt fram.
3.
Tékklisti og ferlar vegna verkefna
Málsnúmer 201503058
Með fundarboði fylgdi tékklisti sem kynningar- og atvinnumálaráð óskaði eftir að lagður yrði fram í öllum ráðum sveitarfélagsins.

Lagt fram.
4.
Heilsueflandi Samfélag - verkáætlun 2014-15
Málsnúmer 201412056
Rætt um gang verkefnisins og næstu skref.
5.
Samningar við íþróttafélög 2016-2018
Málsnúmer 201501151
Með fundarboði fylgdu gögn frá fundi formanns ráðsins og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa með forsvarsmönnum íþróttafélaga í sveitarfélaginu um samninga fyrir árin 2016-2019.

Grunnur að reiknilíkani var kynntur og ræddur. Velt var upp ef forsendur breytast á samningstímanum eða ef samningurinn er ekki uppfylltur til hvaða aðgerða íþrótta- og æskulýðsráð getur gripið. Stefnt er að því að drög að samningum liggi fyrir á næsta fundi ráðsins.

Íþrótta- og æskulýðsráð felur sviðsstjóra, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og formanni ráðsins að fara á fund byggðaráðs og kynna þá vinnu sem farið hefur fram.
6.
Framtíðarrekstur Sundskála Svarfdæla
Málsnúmer 201302115
Ljóst er að Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður mun ekki taka að sér rekstur sundskála Svarfdæla. Íþrótta- og æskulýðsráð óskar eftir því við sveitarstjóra að kanna hvort rekstur sundskálans geti farið með rekstri Húsabakka eða öðrum ferðaþjónustu rekstri á svæðinu.
7.
Sameiginlegur framkvæmdastjóri Skíðafélags Dalvíkur og Golfklúbbsins Hamars
Málsnúmer 201504068
Sviðsstjóri færðslu- og menningarsviðs kynnti stöðuna á ráðningu á sameiginlegum framkvæmdarstjóra Skíðafélags Dalvíkur og Golfklúbbsins Hamars.
8.
Starfsemi vinnuskóla 2015
Málsnúmer 201504069
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti stöðu mála varðandi vinnuskóla í sumar. Elín Rós Jónasdóttir verður áfram forstöðumaður Vinnuskólans. Búið er að ganga frá ráðningu flokksstjóra og er umsóknarferli í gangi fyrir unglinga.