Íþrótta- og æskulýðsráð
58. fundur
1. júlí 2014
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristinn Ingi Valsson
Formaður
Jón Ingi Sveinsson
Varaformaður
Íris Hauksdóttir
Aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
Aðalmaður
Andrea Ragúels Víðisdóttir
Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Gísli Rúnar Gylfason
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Gagnagátt - Íþrótta- og æskulýðsráð.
Undir þessum lið sátu Jónína Guðrún Jónsdóttir, Valdemar Þór Viðarsson og Jóhannes Tryggvi Jónsson, kjörnir varamenn í íþrótta- og æskulýðsráði, fundinn.
Farið var yfir gögn sem eru undir gagnagáttinni, s.s. lög, gildi fræðslu- og menningarsviðs, siðareglur, reglugerðir og samþykktir, starfsáætlun og erindisbréf. Þessi gögn munu áfram vera aðgengileg kjörnum fulltrúum á gagnagáttinni.
Einnig var farið yfir ritun fundargerða, hæfi og vanhæfi, fjárhagsáætlanaferli og fleira sem snýr að störfum nefndamanna.
Einnig var farið yfir ritun fundargerða, hæfi og vanhæfi, fjárhagsáætlanaferli og fleira sem snýr að störfum nefndamanna.
2.
Erindisbréf íþrótta- og æskulýðsráðs,
Meðfylgjandi með fundarboði var erindisbréf íþrótta- og æskulýðsráðs. Vinnuskóla er bætt við þær stofnanir sem starfa á verksviði ráðsins samkvæmt fyrri ákvörðun sveitarstjórnar, að öðru leyti samþykkir íþrótta- og æskulýðsráð bréfið eins og það liggur fyrir.
3.
Kosning ritara.
Farið var yfir ritun fundargerða og kosningu á ritara ráðsins.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi eru kjörnir ritarar ráðsins.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi eru kjörnir ritarar ráðsins.
4.
Fundartími ráðsins.
Almennt fundar íþrótta- og æskulýðsráð mánaðarlega. Íþrótta- og æskulýsráð samþykkir að miðað sé við að fundartími ráðsins sé fyrsti þriðjudagur í mánuði klukkan 8:15.
5.
Framlenging á samstarfssamningi.
Starfshópur um framtíðarrekstur skíðasvæðisins skilaði af sér tillögu á síðasta fundi ráðsins. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hefur sett saman drög að samningi við skíðafélagið út frá þeim tillögum og umræðum ráðsins á síðasta fundi. Samningurinn felst m.a. í að rekstri svæðissins og félagsstarfi verði skipt upp, markaðsstarfi verði sinnt markvisst, að svæðisstjóri sinni viðhaldi á lokunartíma svæðisins og skoðaður verði kostur þess, áður en samningurinn rennur út, að svæðisstjóri sinni verkefnum fyrir önnur félög s.s. Golfklúbbinn.
Um er að ræða viðauka við núgildandi samning við Skíðafélag Dalvíkur sem felst í auknu fjármagni að upphæð kr. 7.000.000 árið 2015, m.a. til að ráða svæðisstjóra. Íþrótta- og æskulýðsráð gerir minniháttar breytingar á samningnum og samþykkir hann, með fyrirvara um viðbótarfjárveitingu við ramma ráðsins, og vísar málinu til heildrænnar umfjöllunar byggðaráðs.

6.
Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2015.
Sviðsstjóri fór yfir komandi starfs- og fjárhagsáætlanagerð. Jafnframt óskaði hún eftir að kjörnir fulltrúar kæmu sem fyrst á framfæri þeim hugmyndum sem þeir kunna að hafa vegna starfs- og fjárhagsáætlanagerðar 2015.