Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

55. fundur
1. apríl 2014 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt Formaður
Snæþór Arnþórsson Varaformaður
Kristinn Ingi Valsson Aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Guðmundur St. Jónsson Varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Skýrsla framkvæmdastjóra skíðafélags
Málsnúmer 201403197
Íþrótta- og æskulýðsráð hafði óskað eftir skýrslu frá framkvæmdastjóra Skíðafélagsins fyrir fundinn en hún barst ekki.
2.
Fréttir af 93. ársþingi UMSE
Málsnúmer 201403139
Lagðar fram til kynningar fréttir frá 93. ársþingi UMSE sem haldið var fimmtudaginn 13. mars að Rimum í Svarfaðardal.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi sótti fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins og upplýsti því frekar um gang fundarins.
3.
Landsmót UMFÍ 50+ árið 2016. Auglýst eftir umsóknum
Málsnúmer 201402125
Ungmennafélag Íslands óskar eftir umsóknum frá sambandsaðilum um að taka að sér 6. Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri sem haldið verður árið 2016. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2014.

Lagt fram.
4.
Unglingalandsmót UMFÍ 2017. Auglýst eftir umsóknum
Málsnúmer 201402126
Ungmennafélag Íslands óskar eftir umsóknum frá sambandsaðilum um að taka að sér 20. Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður um verslunarmannahelgina 2017. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2014. UMSE er að vinna að umsókn og hefur nú þegar fengið stuðningsyfirlýsingu frá Dalvíkurbyggð til þess. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og upplýsingafulltrúi sveitarfélagsins hafa setið í starfshópi vegna umsóknar og hittist starfshópurinn næst 2. apríl nk. til frekari vinnslu á umsókninni.
6.
Iðkendaupplýsingar úr æskurækt
Málsnúmer 201403196
Lagðar voru fram til kynningar tölfræðiupplýsingar úr æskuræktinni sem forstöðumaður Víkurrastar tók saman. Um er að ræða frekar einfaldar upplýsingar sem þarf að vinna betur og munu íþrótta- og æskulýðsfulltrúi ásamt forstöðumanni Víkurrastar taka saman frekari gögn og leggja fyrir næsta fund. Íþrótta- og æskulýðsráð lýsir yfir ánægju sinni með þann möguleika á tölfræðiupplýsingum og utanumhaldi sem æskuræktin veitir.
7.
Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs
Málsnúmer 201403198
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að halda vorfund með forsvarsmönnum íþróttafélaganna 6. maí nk. kl. 16:30. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa er falið að boða félögin, bóka sal og veitingar. Á fundinum myndi ráðið vilja ræða stöðuna á gerð siðareglna félaganna og umsókn um unglingalandsmót 2017. Einnig verður óskað eftir hugmyndum að umræðuefni frá félögunum.
8.
Framlenging á samstarfssamningi
Málsnúmer 201403206
Lagt fram erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur þar sem óskað er eftir framlengingu á samstarfssamningi. Félagið telur sig ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til að halda úti framkvæmdarstjóra og óskar því eftir því að Dalvíkurbyggð komi að ráðningu framkvæmdastjóra en inn í styrktarsamningi sveitarfélagsins við Skíðafélagið er fjármagn vegna 50% starfs framkvæmdastjóra frá 1. júní 2014 til 31. desember 2014.

Íþrótta- og æskulýðsráð frestar afgreiðslu vegna skorts á upplýsingum og felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að fylgja málinu eftir. Stjórn Skíðafélags Dalvíkur verður boðuð á næsta fund ráðsins.
9.
Sund fyrir framhaldskólanemendur
Málsnúmer 201403229
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að meðan á verkfalli framhaldsskólakennara stendur verði framhaldsskólanemendum með lögheimili á Dalvík boðið frítt í sundlaug Dalvíkur gegn framvísun skólaskírteinis.