Íþrótta- og æskulýðsráð
51. fundur
3. desember 2013
kl.
08:15
-
11:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt
Formaður
Snæþór Arnþórsson
Varaformaður
Friðjón Árni Sigurvinsson
Aðalmaður
Magni Þór Óskarsson
Varaformaður
Árni Jónsson
Starfsmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Árni Jónsson
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2013
<OL><LI>Kosning íþróttamanns Dalvíkurbyggðar fór fram með fulltrúum deilda og íþrótta- og æskulýðsráðs.</LI><LI>Íþrótta- og æskulýðsráð fór yfir skipulag á lýsingu á kjöri Íþróttamanns Dalvíkurbyggðar árið 2013. Kjörinu verður lýst fimmtudaginn 2. janúar eða föstudaginn 3. janúar 2014, nánar auglýst síðar.</LI><LI>Rætt var um veitingu heiðursviðurkenningar.</LI><LI>Fyrir fundinum lá bréf frá Heiðari Davíð Bragasyni golfþjálfara um aldursmörk á tilnefningum í kjöri íþróttamanns Dalvíkurbyggðar. Íþrótta og æskulýðsráð tekur undir að það þurfi að endurskoða reglur um aldur. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa er falið að gera tillögu að breyttum reglum og vera tilbúinn með nýjar reglur á næsta fundi ráðsins. </LI></OL>
2.
Sameiginlegt skráningarkerfi fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf
Viktor Már Jónasson forstöðumaður Víkurrastar og umsjónarmaður ÆskuRæktar mætti á fundinn og fór yfir stöðuna á því hvernig innleiðingu á verkefninu miðar. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar Viktori fyrir kynninguna.</EM>
3.
Afreks- og styrktarsjóður 2013
Teknar voru fyrir umsóknir í afreks- og styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkurbyggðar. Styrkirnir verða afhentir á hátíðarfundi ráðsins í byrjun janúar næstkomandi.a) Viktor Hugi Júlíusson.<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð verður ekki við styrkumsókninni að sinni.</EM>b) Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð verður ekki við styrkumsókninni að sinni.</EM>c) Skúli Lórenz Tryggvason <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Skúla um 50.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM>. d) Ólöf María Einarsdóttir.<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Ólöfu Maríu um 50.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM>. e) Arnór Snær Guðmundsson.<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Arnór Snæ um 50.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM>.f) Arnór Reyr Rúnarsson.<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Arnór Rey um 50.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM>.g) Axel Reyr Rúnarsson -<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð styrkir einungis vegna ársins 2013 og verður því ekki við þessari umsókn að sinni.</EM>h) Bríet Brá Bjarnadóttir<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð styrkir einungis vegna ársins 2013 og verður því ekki við þessari umsókn að sinni.</EM>i) Birta Dís Jónsdóttir.<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Birtu Dís um 50.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM>.j) Anna Kristín Friðriksdóttir.<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Önnu Kristínu um 50.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM>.k) Júlíana Björk Gunnarsdóttir.<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Júlíönu Björk um 50.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM>.l) Júlía Ýr Þorvaldsdóttir.<EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Júlía Ýr um 50.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM>.Jafnframt var ákveðið að veita viðurkenningar til félaga sem verður sérstaklega kynnt við lýsingu á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar.
4.
Upplýsingar um um fjárhagsstöðu Golfklúbbsins Hamars
Erindi Golfklúbbsins Hamars til byggðarráðs um fjárhagsstöðu klúbbsins var kynnt.
5.
Gjaldskrár fræðslu- og menningarsviðs 2014
Endurskoðuð gjaldskrá var lögð fyrir fundinn þar sem hækkanir á þjónustugjöldum munu ekki koma til framkvæmdar. Vegna bókunar frá 678. fundi byggðarráðs um afslátt til starfsmanna Dalvíkurbyggðar vegna árskorta í Íþróttamiðstöð Dalvíkur tekur íþrótta- og æskulýðsráð þá ákvörðun að fresta gildistöku afsláttar og felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að útfæra málið betur.
6.
Flutningur vinnuskóla af umhverfis- og skipulagssviði á íþrótta- og æskulýðssvið.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynntu ákvörðun sveitarstjórnar um flutning vinnuskóla á fræðslu- og menningarsvið.
7.
Hvatagreiðslur til íþróttaiðkunar
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi leggja til að hvatagreiðslur verði óbreyttar fram til 31. maí 2014. <EM>Íþrótta- og æskuýðsráð samþykkir tillöguna.</EM>
8.
Samningar við íþróttafélög 2013-2015
Farið var yfir hver staðan á samningi við Skíðafélag Dalvíkur er en samningurinn gerir ráð fyrir að framlag sveitarfélagsins vegna viðhalds á árinu 2014 verði 2.000.000 kr. með fyrirvara um fjárveitingu frá sveitarstjórn en byggðaráð samþykkti við fjárhagsáætlanagerð 2014 að leggja 700.000 kr. í viðhald. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð þykir, í ljósi góðrar vinnu við uppbyggingu Skíðafélags Dalvíkur á árinu 2013, miður að ekki hafi verið hægt að uppfylla samninginn.</EM>
9.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hefur sagt starfi sínu lausu og mun láta af starfi í síðasta lagi 28. febrúar 2014. Starfið hefur þegar verið auglýst og stefnt er að því að ganga frá ráðningu fyrir áramót.Sviðsstjóri fór yfir ýmis atriði í sambandi við ráðningaferlið s.s. tímaramma og hæfniskröfur.<EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð felur sviðsstjóra að ganga frá ráðningu.</EM>