Íþrótta- og æskulýðsráð
50. fundur
1. október 2013
kl.
08:15
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt
Formaður
Friðjón Árni Sigurvinsson
Aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson
Aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson
Aðalmaður
Snæþór Arnþórsson
Varaformaður
Árni Jónsson
Starfsmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Árni Jónsson
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Gjaldskrár fræðslu- og menningarsviðs 2014
Lögð var fyrir tillaga að gjaldskrárbreytingu vegna mótahalda í Íþróttamiðstöð og vegna útleigu á Íþróttamiðstöð Dalvíkur til annara viðburða en móta. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir breytingu á gjaldskránum og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.</EM>
2.
Uppbygging íþróttasvæðis UMFS
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála fóru yfir þá fundi sem hafa átt sér stað við undirbúning á uppbyggingu Íþróttasvæðis UMFS og stöðu málsins nú.
3.
Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar
Viktor Már Jónasson forstöðumaður Víkurrastar kom á fundinn, fór yfir skýrslu yfir starf síðasta starfsárs og kynnti helstu verkefni í starfi félagsmiðstöðvarinnar og frístundahússins. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar Viktori fyrir afar greinargóðar upplýsingarnar.</EM>
4.
Fjárhagur Skíðafélagsins
Sigurgeir Birgisson framkvæmdastjóri Skíðafélags Dalvíkur kom á fundinn og kynnti helstu verkefni félagsins og fór yfir fyrsta ár hans í starfi. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar Sigurgeiri fyrir upplýsingarnar.</EM>
5.
Lýðheilsustefna Dalvíkurbyggðar
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fór yfir vinnu starfshóps um Lýðheilsustefnu - heilsueflandi samfélag. En stefnt er á að fyrsta stigi vinnunnar ljúki á þessu ári og er stefnt að opnu málþingi í framhaldinu.