Íþrótta- og æskulýðsráð
48. fundur
19. júní 2013
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt
Formaður
Kristinn Ingi Valsson
Aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson
Aðalmaður
Snæþór Arnþórsson
Varaformaður
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Árni Jónsson
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Árni Jónsson
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Hvatagreiðslur til íþróttaiðkunar
Með fundarboði fylgdu reglur um hvatagreiðslur sem samþykktar voru á 47. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs. Jafnframt fylgdu útreikningar um iðkun og hvað áætlað er að upphæðin sem er á fjárhagsáætlun dugi fyrir hárri niðurgreiðslu. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir minniháttar breytingar á reglunum og leggur til að hvatagreiðslurnar verði 1400 kr. á mánuði samkvæmt reglunum fyrir tímabilið september til desember 2013. Við fjárhagsáætlanagerð 2014 verði upphæð þess árs ákveðin.</EM>
2.
Velferðarsjóður ungmenna
Með fundarboði fylgdu drög að reglum um Velferðarsjóð ungmenna en þær eru lítillega breyttar frá því að þær voru upphaflega samþykktar í íþrótta- og æskulýðsráði. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir reglurnar um sjóðinn eins og þær liggja fyrir og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.</EM>
3.
Starfsáætlun 2014
Sviðsstjóri og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fóru yfir fyrirhugaða vinnu við starfsáætlanagerð 2014 og var umræða um hvaða verkþætti íþrótta- og æskulýðsráð telur mikilvægt að verði settir í forgang á næsta ári en á næsta fundi ráðsins verður starfsáætlun að öllum líkindum til afgreiðslu. Jafnframt rætt um hvaða lykiltölur ráðið telur mikilvægt að lagðar séu fram í starfsáætlun og voru skráðir niður minnispunktar í þessu samhengi.
4.
Gildi fræðslu- og menningarsviðs
Sviðsstjóri og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynntu þá vinnu sem farið hefur fram við að velja og skilgreina gildi fræðslu- og menningarsviðs og hver eru næstu skef en gildin eru: virðing, jákvæðni og metnaður. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð lýsir ánægju sinni með vinnuna og þakkar fyrir upplýsingarnar.</EM>
5.
Uppbygging íþróttasvæðis UMFS
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fór yfir stöðu mála og hver eru næstu skref en beðið er áætlunar frá Peter W. Jessen byggingariðnfræðings hjá Verkís.
6.
Þjónustuhús tjaldsvæðis
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og Jóni Ingi Sveinsson fóru yfir stöðu mála og hver næstu skref eru. Talsverð uppbygging mun eiga sér stað í sumar og vonandi mun henni ljúka á næsta ári ef fjármagn fæst. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar upplýsingarnar.</EM>
7.
Leiðbeiningar til sveitastjórna um viðauka við fjárhagsáætlun
<EM>Lagt fram.</EM>
8.
Lýðheilsustefna Dalvíkurbyggðar
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti þá vinnu sem þegar hefur farið fram og hvað er framundan en stefnt er að málþingi um lýðheilsumál í sveitarfélaginu í haust. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar upplýsingarnar.</EM>
9.
Framtíðarrekstur Sundskála Svarfdæla
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og formaður ráðsins upplýstu um stöðu mála og næstu skref. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar upplýsingarnar.</EM>