Íþrótta- og æskulýðsráð
45. fundur
16. apríl 2013
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt
Formaður
Friðjón Árni Sigurvinsson
Aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson
Aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson
Aðalmaður
Snæþór Arnþórsson
Varaformaður
Árni Jónsson
Starfsmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gyflfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Árni Jónsson
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Starfsmannakönnun fræðslu- og menningarsviðs
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála fór yfir helstu niðurstöður starfsmannakönnunar. Könnunin sýnir mjög jákvæðar niðurstöður. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar kynninguna og fagnar góðri niðurstöðu.</EM>
2.
Þjónustuhús tjaldsvæðis-vallarhús
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti vinnu sem farið hefur fram við hönnun og uppbyggingu á tjaldsvæðis og vallarhúsi. Starfandi er faghópur skipaður Jóni Arnari Sverrissyni garðyrkjustjóra, Jóni Inga Sveinssyni fulltrúa í íþrótta- og æskulýðsráði, Dagbjörtu Sigurpálsdóttur formanni íþrótta- og æskulýðsráðs, Kristjáni Hjartarsyni formanni byggðarráðs og Árna Jónssyni íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Unnið hefur verið að þarfagreiningu og er það mat hópsins að mikilvægt er að að bæta aðstöðu tjaldsvæðis bæði þegar kemur að útisvæði og inniaðstöðu. Tilllögur liggja fyrir um uppbyggingu á tjaldsvæði sem hægt er að hefja strax í sumar en mikilvægt er að ráðist verði í aðgerðir sem fyrst. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að unnið verði áfram að þessu máli.</EM>
3.
Velferðarsjóður ungmenna
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála kynntu vinnu við undirbúning á stofnun á velferðarsjóði ungmenna. Ábendingar hafa borist frá íþróttafélögum í Dalvíkurbyggð. Næstu skref er að halda kynningar- og umræðufund með íþróttafélögunum.
4.
Landsmót UMFÍ 50 2015. Auglýst eftir umsóknum
Á 44 fundi íþrótta- og æskulýðsráðs var eftirfarandi bókað. ”Rætt var um kosti og galla þess að halda Landsmót 50+ árið 2015.<BR><I>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að sækja ekki um að þessi sinni.“</I><EM></EM> <EM>Sveitarstjórn óskaði eftir því að ráðið myndi endurskoða ákvörðun sína. Frekari umræður áttu sér stað en ónákvæmni gætti í síðustu bókun þar sem sveitarfélög eru ekki umsóknaraðili heldur héraðssambönd. Því óskar íþ</EM>rótta- og æskulýðsráð eftir því að stjórn UMSE taki málið til umfjöllunar og taki afstöðu hvort það sé tímabært að sækja um að nýju vegna Landsmóts UMFÍ 50+ árið 2015 enda UMSE formlegur umsóknaraðili.
5.
Hvatagreiðslur til íþróttaiðkunar
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála kynntu niðurstöðu undirbúningsvinnu vegna undirbúnings á innleiðingu á hvatagreiðslum vegna íþrótta- og tómstunda í Dalvíkurbyggð. <EM></EM><EM></EM><EM>Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að útfæra reglur.</EM>
6.
Íþrótta- og tómstundastarf ungmenna 2013
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála kynnti niðurstöður könnunar um ástundun í íþrótta- og tómstundastarfi barna og ungmenna í Dalvíkurbyggð sem framkvæmd var í byrjun febrúar 2013.<EM></EM>
7.
Frá Barna- og ungmennaráði UMFS. Vantar æfingaaðstöðu á Dalvík fyrir yngri flokka í fótbolta í sumar.
Íþrótta- og æskulýðsráð tók til umfjöllunar erindi frá barna- og unglingaráði UMFS sem vísað er á byggðarráð dagsett 12. apríl 2013. Í fundargerð frá 40. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkurbyggðar 11. nóvember 2012 var tekið til umfjöllunar samningamál við íþróttafélög í Dalvíkurbyggð. Þar er sérstaklega bent á að gera þurfi ráð fyrir endurbótum á æfingarsvæði í fjárhagsáætlun 2013.<EM></EM> <EM>"Íþrótta- og æskulýðsráð telur mikilvægt að þrátt fyrir að ekki hafi náðst enn að gera úttekt á íþróttasvæði UMFS geri bæjarráð ráð fyrir fjármagni við fjárhagsáætlun 2013 til endurbóta á neðra svæðinu/æfingavellinum."</EM><EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð ítrekar afstöðu sína til uppbyggingar á æfingarsvæði og að unnið verði að lausnum fyrir sumarið 2013 í samstarfi við barna- og unglingaráð UMFS.</EM><EM></EM>
8.
Vorfundur 2013
Vorfundur íþrótta-og æskuýðsráðs og íþróttafélaga verður haldinn í Árskógi þriðjudaginn 7. maí kl. 16:00. Ársskýrslur og ársreikningar eru að skila sér inn til yfirlestrar og verða sendar út á fulltrúa til yfirlestrar á næstu dögum.
9.
Lýðheilsustefna Dalvíkurbyggðar
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og sviðsstjóri fræðslu- og menningarmál kynntu niðurstöðu fræðsluferðar til Landlæknisembættisins vegna undirbúnings á gerð lýðheilsustefnu. Niðurstöður þeirrar ferðar er góður grunnur fyrir áframhaldandi vinnu. Jafnframt leggur íþrótta- og æskuýðsfulltrúi og sviðsstjóri fræðslu- og menningarmál að bætt verði við einum fagaðila í undirbúningshóp við gerð lýðheilsustefnu en það er Harpa Rut Heimisdóttir íþróttafræðingur. "Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir tilnefningu Hörpu Rutar".
10.
Ungmennaráð- erindisbréf
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti vinnu við endurskipulagningu á hlutverki ungmennaráðs og hlutverki þess í stjórnkerfi Dalvíkurbyggðar.