Íþrótta- og æskulýðsráð
41. fundur
3. desember 2012
kl.
14:00
-
16:30
í stóra salnum í Bergi
Nefndarmenn
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt
Formaður
Friðjón Árni Sigurvinsson
Aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson
Aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson
Aðalmaður
Árni Jónsson
Starfsmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Snæþór Arnþórsson
Varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Árni Jónsson
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2012
Fulltrúar deilda og stjórna mættu á fundinn til að kjósa um Íþróttamann Dalvíkurbyggðar 2012. Mættir voru Björn Friðþjófsson Dalvík/Reyni, Birkir Bragason Skíðafélag Dalvíkur, Guðrún Erna Rúdolfsdóttir Hestamannafélagið Hringur, Marinó Þorsteinsson Umf Reynir, Gísli Bjarnason Golfklúbburinn Hamar, Oddný Sæmundsdóttir Sundfélagið Rán og Inga María Ingvadóttir frjálsar Umf Svarfdæla. Eftirfarandi einstaklingar eru tilnefndir: Bessi Víðisson, Dalvík/Reynir knattspyrna.Agnar Snorri Stefánsson, Hestamannafélagið Hringur.Tinna Karen Arnardóttir, Sundfélagið Rán.Júlíana Björk Gunnarsdóttir, Umf Svarfdæla frjálsar.Ólöf Rún Júlíusdóttir, Umf Reynir frjálsar.Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, Golfklúbburinn Hamar.Jakob Helgi Bjarnason, Skíðafélag Dalvíkur.Júlía Ýr Þorvaldsdóttir, Óðinn sund. Kjöri á íþróttamanni Dalvíkbyggðar verður lýst í Bergi þann 3. janúar 2013, klukkan 17:00
2.
Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð 2012
Umsóknir einstaklinga í afreks- og styrktarsjóð Dalvíkurbyggðar eru fimm á árinu 2012. Íþrótta- og æskulýðsráð tók eftirfarandi umsóknir til afgreiðslu: a) Umsókn frá Unnari Má Sveinbjarnarsyni, skíði <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Unnar um 100.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM><EM></EM> <EM>b) Umsókn frá Þórdísi Rögnvaldsdóttur, golf</EM><EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Þórdísi um 100.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM><EM></EM> <EM></EM> <EM>c) Umsókn frá Sigurðar Ingva Rögnvaldssyni, golf</EM><EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkja Sigurð um 100.000 kr. og vísar því á lið 06-80</EM><EM></EM> <EM>d) Umsókn frá Ólöfu Maríu Einarsdóttur, skíði</EM><EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð hafnar umsókninni þar sem hún uppfyllir ekki skilyrði afreks- og styrktarsjóðs.</EM><EM></EM> <EM>e) Umsókn frá Þorsteini Kristni Stefánssyni, Boccia</EM><EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð hafnar umsókninni þar sem hún uppfyllir ekki kröfur afreks-og styrktarsjóðs.</EM><EM></EM> <EM>f) Íþrótta- og æskulýðsráð tók til umfjöllunar frekar viðurkenningar sem það hyggst veita á fundinum þegar lýsing á íþróttamanni ársins fer fram. Friðjón vék að fundi undir hluta af umræðunni. </EM><EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð ákveður nokkra viðurkenningarstyrki en ekki verður upplýst um þá fyrr en á fundinum.</EM>
3.
Samningar við íþróttafélög 2013-2015
Samningur við Skíðafélag Dalvíkur var kynntur af fulltrúum í samninganefnd. Athugasemdir hafa borist frá stjórn Skíðafélags Dalvíkur varðandi samninginn og voru breytingar gerðar á samningnum. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar. Íþrótta- og æskulýðsráð vekur athygli bæjarstjórnar á að inni í samningnum eru 2.000.000 á ári í viðhald en það rúmast ekki innan ramma málaflokksins.</EM><EM></EM> <EM></EM> <EM>Friðjón Sigurvinsson vék af fundi 16:35</EM>
4.
Sundlaugin í Árskógi
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti áætlun um rekstrarskostnað við Sundlaugina í Árskógi en í dag er hún notuð vikulega yfir vetrartímann í skólasund. <EM>Íþrótta- og æksulýðsráð óskar eftir því við skólastjóra Árskógarskóla að hann skipuleggi skólasundið í lotum frá áramótum, þ.e. að sundkennslan eigi sér stað þegar snjóa leysir. Jafnframt óskar ráðið eftir umsögn fræðsluráðs um fyrirkomulag sundkennslu sem og óskar eftir því að umhverfis- og tæknisvið vinni tíu ára viðhaldsáætlun fyrir sundlaugina.</EM>
5.
Til sveitarstjórna vegna áfengisauglýsinga á íþróttasvæðum
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að senda þetta áfram til íþróttafélaganna til kynningar.