Íþrótta- og æskulýðsráð
39. fundur
11. október 2012
kl.
08:15
-
10:15
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt
Formaður
Friðjón Árni Sigurvinsson
Aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson
Aðalmaður
Magni Þór Óskarsson
Varamaður
Árni Jónsson
Starfsmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Árni Jónsson
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Gervigrasvöll á Dalvík sumarið 2013
Íþrótta- og æskulýðsráð fór á fund bæjarráðs þar sem fulltrúar þrýstihóps um uppbyggingu gervigrasvallar voru viðstaddir.
2.
Lokun sundskálans
Upplýst var um stöðu mála en Dalvíkurbyggð sótti um undanþágu frá reglum um laugarvörslu sbr. 2 mgr 11. gr. í reglugerð um Hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Umhverfisráðuneytið hafnaði ósk sveitarfélagsins um undanþágu. Næstu skref eru þau að Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kalli saman starfshóp sem fjalli um framtíð Sundskála Svarfdæla. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð óskar eftir að fá tillögur starfshópsins til umsagnar um leið og þær liggja fyrir.</EM>
3.
Samningar við íþróttafélög 2013-2015
Drög að samningum til 3 ára við UMF Svarfdæla, UMF Reyni, Sundfélagið Rán, Gofklúbbinn Hamar, UMF Þorsteinn Svörfuður, blakfélagið Rima og hestamannafélagið Hring voru til umræðu. Nýjar áherslur sveitarfélagsins í samningunum eru að félögin séu tilbúin að vinna að sameiginlegri stefnu í búningamálum til hagræðingar fyrir barnafjölskyldur í sveitarfélaginu. Jafnframt munu félögin í samstarfi við sveitarfélagið taka þátt í að innleiða sameiginlegt skráningarkerfi fyrir íþrótta- og tómstundir barna og unglinga, verði ákvörðun um innleiðingu tekin. Einnig er mælst til þess að á samningstímanum vinni félögin sér siðareglur og er bent á að félögin geti unnið þær saman. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð líst vel á drögin og óskar umsagnar félaganna fyrir næsta fund ráðsins.</EM>
4.
Endurskoðun á reglum afreks- og styrktarsjóðs
Reglur um afreks- og styrktarsjóð og kosningu til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar voru til umfjöllunar. Auglýsingar vegna umsókna í afreks- og styrktarsjóð munu birtast fyrir 15. nóvember. Afhending úr afreks- og styrktarsjóði mun fara fram við sama tilefni og tilkynnt verður hver er íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2012.Helstu breytingar á reglugerð um kosningu íþróttamanns Dalvíkurbyggðar eru þær að þeir sem hafa kosningarétt greiða atkvæði til þriggja tilnefndra íþróttamanna en ekki allra eins og áður hefur verið. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráðs felur íþrótta- og æksulýðsfulltrúa, Friðjóni og Kristni að móta tillögu út frá umræðum.</EM>
5.
Fjárhagur Skíðafélagsins
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi lagði fram upplýsingar frá framkvæmdastjóra skíðasvæðis í Böggvistaðafjalli og Skíðafélags Dalvíkur. Farið var yfir fjárhagsstöðu Skíðafélagsins og hvernig stefnt er að því að vinna í endurskipulagningu á fjárhag félagsins. Til umfjöllunar var samstarfssamningur Dalvíkurbyggðar og Skíðafélags Dalvíkur. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samstarfssamninginn með lítilsháttar breytingum og vísar honum til umsagnar stjórnar Skíðafélagsins. </EM>